156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:48]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, hér eru stór orð höfð uppi. Hæstv. ráðherra kemur hér upp og talar um vaxtaokur. Ég veit ekki betur en að nánast helmingurinn af bankakerfinu sé ríkisbankar. Það er þá eitthvað sem hún getur gert í og best væri líklega að selja bankana. En ég held, eins og ég sagði áðan, að við séum sammála um það að við þurfum að verja þá sem minnst mega sín í þessu samfélagi en hvernig við gerum það og hvaða áhrif það mun hafa verðum við að horfa til af því að allra hagsmunir eru þar undir, líka þessara hópa. Hérna eru 3–4 milljarðar og engum dylst að þessi ágæta ríkisstjórn á ekki í neinum vandræðum með að auka útgjöldin. Hér detta inn nokkrir milljarðar nánast á hverjum degi í aukin útgjöld þannig að þetta mun allt hafa áhrif.