156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

259. mál
[18:49]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég vil bara þakka fyrir umræðuna um þetta góða mál. Sú aðferðafræði sem hér er verið að nota er sú sem tryggir það að þeir sem höllustum fæti standa í samfélaginu verða reistir upp úr sinni fátæktargildru. Sama hvernig á það er litið þá liggur algerlega fyrir að bara frá árinu 2008 hefur kjaragliðnun þessara hópa vaxið um ríflega 40%. Betur má ef duga skal. Ég segi bara þetta: Áfram veginn. Þetta frumvarp er frábært. Þetta frumvarp er risastór áfangi fyrir fólkið okkar sem höllustum fæti stendur í samfélaginu. Ég hvet alla til að gleðjast með þeim sem við erum einmitt að standa með í dag með því að leggja fram þetta frumvarp. Ég treysti því að það fái málefnalega og faglega umræðu í okkar góðu velferðarnefnd. Ég efast ekki um það. Áfram veginn. Til hamingju með þennan fallega dag, elskulega fólkið okkar sem við erum að taka utan um af hug og hjarta, þessi ríkisstjórn, sem er ríkisstjórn allra landsmanna og sú ríkisstjórn sem ætlar að reisa fólkið okkar upp úr þeirri rammgerðu fátæktargildru sem það hefur þurft að búa við á undanförnum árum í boði vanhæfra ríkisstjórna sem hafa látið sér á sama standa. En það er annar dagur í dag, dagur bjartsýni. Það er bros á þessari ríkisstjórn. Áfram veginn.