156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

235. mál
[19:00]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Við sem fylgjumst með sauðfjárbúskap og erum áhugamenn um slíkt höfum að sjálfsögðu tekið eftir því á undanförnum árum að búið er að finna hér á landi afskaplega hentugt erfðafræðilegt afbrigði af kindum sem eru ónæmar eða að einhverju leyti ónæmar fyrir riðusjúkdómnum sem hefur verið ansi skæður hér á landi um mjög langa hríð og valdið miklum kostnaði og búsifjum víða um land. Nú er þessi erfðafræðieiginleiki kominn í ræktun og það er vel. Ég hef nú verið að fylgjast með í þessum málum og hef tekið eftir því að það er sérstaklega ein manneskja, Karólína Elísabetardóttir, bóndi uppi á heiðum í Austur-Húnavatnssýslu, sem hefur verið ansi áhugasöm um þetta og ýtt þessu mikið áfram og ég fylgist vel með í gegnum hana.

Ég ætlaði að fá að spyrja ráðherra að því hvernig — ég hjó eftir einu; þessari skyldu bænda til að rækta ákveðna eiginleika og þá kemur auðvitað upp í hugann ef einhverjir bændur vilja þetta ekki, þykir vænt um sitt fé eða eitthvað svoleiðis. Mér sýnist tíminn vera þessi þrjú ár, til 2028, ég veit ekki hvort allt landið sé undir eða bara ákveðin svæði en hvort hæstv. ráðherra vilji svara því með hvaða hætti eigi að skylda bændur. Hvaða viðbrögð sér hún fyrir sér ef menn þrjóskast eitthvað við eða hvaða þvingunaraðferðir sér hún fyrir sér í því að ná þessu fram?