156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

235. mál
[19:02]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, þetta mál er þess eðlis að ef ætlunin er að ná fram hinum stóru markmiðum, annars vegar að útrýma riðu og hins vegar að aflétta þeim íþyngjandi aðgerðum sem riðusjúkdómurinn felur í sér fyrir þá bændur sem undir verða, þá þarf að rækta upp ónæmi með þeim hætti að allir taki þátt. Það er vissulega með þetta mál eins og flest önnur, a.m.k. að mati þeirrar sem hér stendur, að best er að ná markmiðunum fram með jákvæðum hætti, þ.e. með hvatningu, með stuðningi og með viðurkenningum. Það er engu að síður þannig að ef ætlunin er að ná þessu fram þá er það talið þurfa að vera svo að þessi skylda sé til staðar þannig að ekki verði farið í þessa vegferð og hún síðan ónýtt vegna þess að það næst ekki þetta ónæmi af því að það taka ekki allir þátt. En til þess er þessi tímafrestur gefinn.

Ég verð að segja, og eins og kom fram í máli mínu, að þetta á sér auðvitað töluverðan aðdraganda og frá því að þetta gen fannst hér þá hefur verið unnið mjög markvisst að því af hálfu stjórnvalda og af hálfu Bændasamtakanna að finna leiðir til þess að tryggja að þetta skili sem mestum ávinningi fyrir bæði stjórnvöld — sem hafa óumdeilanlega lagt út í töluverðan kostnað þegar þessi mál koma upp og geri ég þá sannarlega ekki lítið úr kostnaði þeirra bænda sem fyrir hafa orðið eða tilfinningalegu tjóni, áfalli. Þetta er það sem menn telja best til þess fallið, að fara þessa leið. Ég vona innilega að til þess þurfi ekki að koma, að það reyni ekki á það, af því að hv. þingmaður spurði líka: Hvað ef einhver hlýðir ekki? Ég vona innilega (Forseti hringir.) að á það reyni ekki en við þurfum að sjá til hvað kemur út úr því.