dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Hún svaraði reyndar ekki í hverju þessar þvingunarráðstafanir væru fólgnar, hvað hún sæi fyrir sér í því, ekki beint. En ég ætlaði kannski að bæta við þessa fyrri spurningu mína. Það er varðandi það sem er mikið talað um í þessu frumvarpi og ég hef áhyggjur af. Ég hef auðvitað áhyggjur af því að þarna er ráðuneytið, og ætlar sér virðist vera, að framselja vald að mörgu leyti og töluverðu leyti til Matvælastofnunar. Jú, jú, í því augnamiði að hægt sé að kæra til ráðuneytisins. Ég átta mig alveg á því. En finnst hæstv. ráðherra kannski ekki of mikið í lagt að framselja alfarið, eins og virðist vera í þessu frumvarpi, ekki bara á einum stað heldur fleiri en einum, allt þetta vald úr ráðuneytinu til Matvælastofnunar? Er þetta ekki aðeins of mikið í lagt? Það sýnist mér nú. Og í öðru lagi: Hvað sér hún fyrir sér að þetta taki langan tíma? Hún nefndi 2028. Ég vil bara aðeins ítreka þessa spurningu mína. Á hún þá við að þetta takist á öllu landinu eða er bara verið að tala um riðusvæðin eða einstaka svæði? Hvort hún eigi við að það verði hægt að raunverulega útrýma riðu á svona skömmum tíma. Ég veit að þetta gengur mjög vel. Ég hef lesið mér til um það að útbreiðsla þessa erfðaeiginleika hefur tekist afskaplega vel og kannski miklu betur en menn bjuggust við. Bara á örskömmum tíma hefur þetta dreifst mjög hratt og ég efa ekki að það gerist hratt en telur hæstv. ráðherra að þetta náist á þremur árum á öllu landinu eða bara hluta þess?