dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.
Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið. Líkt og kom fram í framsöguræðu minni er stefnan sett á að það verði litlar líkur á að upp komi riðuveiki í sauðfjárhjörð á Íslandi frá og með árinu 2028 en að innan 20 ára verði riðuveiki á Íslandi útrýmt, þ.e. riðuveiki í sauðfé. Þannig að við gefum okkur 20 ár til að klára dæmið alveg og ég tel að það sé eitthvað sem við eigum að geta sammælst um og ég veit að hv. þingmaður er mér þar sennilega sammála, ætla ég að leyfa mér að segja.
Hv. þingmaður spyr líka um Matvælastofnun og hvort ráðuneytinu og ráðherra þyki ekki fulllangt gengið að framselja þetta vald. Nú er það svo að stofnunin mælir þegar fyrir um aðgerðir þegar riða kemur upp — það er ráðherra sem fyrirskipar, það er ráðherra sem setur reglugerðir — og ég ber fullt traust til þess fagfólks sem starfar í Matvælastofnun. Þar liggur jú þekkingin. Ráðuneytið er alla jafna háð upplýsingum og faglegu mati Matvælastofnunar við margt sem viðkemur þessum málum eins og er. Þar liggur þekkingin. Það er hins vegar þannig að reglugerðin er sett af ráðherra þannig að þetta er nú áfram töluvert samstarf og ég vona að það haldi áfram rétt eins og það er við Bændasamtökin um þetta mikilvæga mál.
En punkturinn er þessi: Þetta er töluvert utanumhald. Þetta er töluverð breyting. Markmiðið er gott. Mér þótti mikilvægt, ráðuneytinu og Bændasamtökunum við vinnslu þessa máls að fyrirsjáanleikinn yrði sem mestur. Það er gert með þessum hætti og það er engin ástæða til að gera lítið úr mikilvægi þess að bændur eigi líka í einstaka tilfellum möguleika á að kæra ákvörðun til ráðuneytisins en eigi ekki þann eina kost að fara út í kostnaðarsamt og tímafrekt dómsmál ef mál þróast einhvern veginn þannig að þeim þykir á sig halla. Það er nú ástæðan fyrir þessu.