156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

235. mál
[19:09]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég sé hérna í lið nr. 5, um samráð, að það hafa sýnist mér flestir hlutaðeigandi komið að þessari vinnu og undirbúningi á þessu máli, sem er vel. En ég velti aðeins fyrir mér þar sem farið er yfir meginefni frumvarpsins, sem skiptist í þrjá meginliði, að það kemur fram hér í 1. lið, með leyfi forseta:

„Í fyrsta lagi er lagt til í 1. gr. frumvarpsins að fengin verði heimild fyrir ráðherra til að setja í reglugerð skyldu til að rækta dýr þannig að þau verði ónæm fyrir tilteknum dýrasjúkdómi, sem og að geta fyrirskipað ræktun, sbr. 2. gr. frumvarpsins. Mikilvægur liður í útrýmingu riðuveiki er að ræktaður verði sauðfjárstofn sem er ónæmur fyrir veikinni og að fé sem tekið er að nýju eða bætt í hjörð eftir að riðuveiki hefur komið þar upp sé ónæmt fyrir riðu. Því er með frumvarpinu lagt til að skýrt sé kveðið á um að ráðherra sé heimilt með reglugerð að skylda dýraeigendur til ræktunar gegn dýrasjúkdómum, þar á meðal riðuveiki …“

Þetta er vel. Ég velti bara fyrir mér: Þegar ráðherra fær þetta vald, þetta skylduvald í þessu samhengi, hvort ekki þurfi þá að fylgja fjármagn þegar svona kvaðir eru settar á bændur til að geta orðið við því sem ráðherrann þarna hefur heimild til að skylda menn til. Ég sé þetta ekki, hæstv. ráðherra, í fljótu bragði í gögnunum, þannig að það væri ágætt að heyra mat hæstv. ráðherra á þessu.