156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

235. mál
[19:11]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni kærlega fyrir andsvarið. Auðvitað er þetta mikilvægt mál, kostnaðurinn. Það er kannski rétt að segja frá því fyrst að auðvitað liggur það í hlutarins eðli að fækkun á riðutilfellum á komandi misserum og minni inngrip í kjölfarið mun auðvitað hafa mjög jákvæð áhrif á útgjöld hins opinbera. Það er þá peningur sem vonandi er hægt að nýta til góðra verka, ekki síst í landbúnaði. Varðandi áhrifin beint á bændur þá er það þannig að bændur þurfa að láta arfgerðargreina fé sitt jafnt og þétt á komandi árum. Það er Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem annast þá árlegu greiningaráætlun, framkvæmdina og skráningu. Hver greining kostar núna 1.600 kr. en ríkissjóður styrkir greininguna upp að 1.300 kr. Þegar um er að ræða möguleg verndandi inngrip þá eru það 650 kr. Þannig að þetta er vissulega kostnaður til að byrja með fyrir bændur. Það er þá 300 kr. á sauðfé þegar um er að ræða verndandi arfgerðina en 650 kr. þegar um er að ræða möguleg verndandi inngrip. Þannig að þetta er ákveðinn kostnaður en til lengri tíma er það auðvitað mikill fjárhagslegur ávinningur líka fyrir sauðfjárbændur. Það er kannski það sem þarf að skoða. Og bara svo að því sé til haga haldið þá er heildarstyrkupphæð ríkisins til arfgerðargreiningar 77 millj. kr. á þessu ári. Þetta eru miklir peningar og við eigum gríðarlegra sameiginlegra hagsmuna að gæta þarna öll að það náist vel utan um þetta. Þetta er sem sagt kostnaðurinn eins og hann liggur fyrir samkvæmt þeim tölum sem ég hef fengið uppgefnar.