156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

235. mál
[19:27]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er mikið fagnaðarefni að fá þetta frumvarp, að þetta sé lagt fram og að við höfum tök á því. Það er ekkert langt síðan við stóðum frammi fyrir því að eina ráðið væri niðurskurður og hann virtist ekkert duga. Það var auðvitað sorglegt að horfa upp á niðurskurð sem fór fram jafnvel að vori í sauðburði. Að hafa þetta frumvarp hér og hafa þessa möguleika, að geta farið aðra leið með því að rækta þetta prótín eða hvað kallast það, príon úr skepnunum eða viðnám fyrir því er auðvitað eitthvað sem maður fagnar innilega. Mér finnst alveg vera fullt tilefni til að koma hér upp sem fulltrúi landsbyggðarinnar á þinginu og geta staðið fyrir því að hafa annað ráð en þennan niðurskurð, sem hefur í rauninni oft verið alveg hörmulegur upp á að horfa. Það er rétt að nota þetta tækifæri, eins og fleiri hv. þingmenn, til að nefna frumkvöðul á þessu sviði: Karólínu Elísabetardóttur í Hvammshlíð. Að hún skyldi ýta þessu fram, þessari arfgerð, er mjög jákvætt og í þessu máli tel ég að við þurfum ekki endilega að horfa til einhverra þvingunaraðgerða til að ná fram þessum breytingum. Ég held að allir bændur vilji raunverulega taka þátt og það er nú málið eins og staðan er nú. Einnig er ákveðinn kostur að hafa málið í Matvælastofnun. Við erum núna að fara nýja leið og það þarf að einhverju leyti að hafa sveigjanleika og fikra sig áfram með þá leið. Ég tel frumvarpið því vel úr garði gert og hlakka til þess að fá að fjalla um það í atvinnuveganefndinni og njóta þar liðsinnis góðra meðlima nefndarinnar, m.a. hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar sem fór mjög ítarlega yfir málið og er litlu við það að bæta. Í lokin þá þakka ég kærlega fyrir að þetta skuli vera lagt hér fram.