156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

235. mál
[19:30]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég ætlaði bara að koma stuttlega upp í lokin og þakka fyrir þessa fínu umræðu. Ég veit að málið á eftir að fara í gegnum atvinnuveganefnd og fá þar líka áframhaldandi góða umræðu. Mig langaði kannski aðeins að nefna, af því að verið er að tala um að við erum jú að miða að riðulausu Íslandi í þessari áætlun árið 2044, að auðvitað væri æskilegt að sjá það gerast fyrr en mig langar samt að hnykkja á því að verið er að tala um að markmiðið sé að ná því fram með þessu máli að það verði litlar líkur á riðu árið 2028 og hverfandi líkur árið 2032. Það er kannski líka varhugavert að fara í of hraða ræktun um allt land af því að við viljum varðveita erfðafjölbreytileikann. Þá langar mig líka að nefna það sem kom fram í máli hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar um hina arfgerðina, þ.e. ekki ARR heldur, og nú held ég að ég fari rétt með, T137. Það er nákvæmlega þess vegna sem við erum að styrkja sæðingar, bæði með verndandi, ARR, og síðan þessari mögulega verndandi, akkúrat til þess að hafa þennan fjölbreytileika vegna þess að fleiri genasamsætur sem eru verndandi auka auðvitað möguleikann á því að þetta breiðist hraðar út og koma í veg fyrir skyldleikarækt, ef svo má segja. Því er þetta gríðarlega mikilvægt atriði og ég hygg að atvinnuveganefnd fái kannski frekari upplýsingar um muninn á því sem er verndandi og mögulega verndandi, hvor möguleikinn sé meiri og af hverju vísindamenn hafa farið varlegar í þessa seinni arfgerð og hvað það er.

Hér er búið að vísa í þá sem höfðu frumkvæði að því að við stöndum hér í þessum góðu sporum og lögðust á eitt; fyrri stjórnvöld og fyrri ráðherrar, viðkomandi stofnanir og ekki síst Bændasamtökin, sem öll eiga heiður af því að við stöndum hér á þessum stað. Þá er þetta lokaskref eftir, þ.e. að þingið klári sín mál.

Mig langar rétt í lokin aftur að nefna að auðvitað er æskilegt að ná þessu fram með hvatningu og ég tek heils hugar undir það sem hér hefur verið sagt, að það er erfitt að sjá fyrir sér þann bónda sem ekki ætlar að leggja hönd á plóg í því að tryggja riðulaust Ísland. Þó svo að í þessu máli sé mælt fyrir um skyldu og heimildir ráðherra eru engar heimildir í þessu máli til þess að beita þvingunum. Það er ekki svo. Það var spurt um þetta fyrr og ég var ekki nægilega skýr og vildi því taka það fram. En möguleikinn er þó alla vega fyrir hendi ef þetta fer illa, sem ég efast um að gerist og ég sé ekki fyrir mér að þær aðstæður skapist. Ég hlakka bara til að sjá endanlega niðurstöðu þegar atvinnuveganefnd hefur klárað málið og þakka fyrir umræðuna hér kvöld.