156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Það kom verulega á óvart á fundi hv. atvinnuveganefndar í morgun að meiri hlutinn þar skyldi leggja fram frumvarp, sem hann hafði svo sem viðrað við nefndina að yrði lagt fram, um breytingar á veiðistjórn grásleppu. Af því tilefni lögðu fulltrúar minni hlutans fram eftirfarandi ályktun:

„Undirritaðir leggjast eindregið gegn frumvarpi meiri hluta atvinnuveganefndar um breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða. Frumvarpið er hroðvirknislega unnið og stríðir gegn öllum reglum og venjum um vandaða lagasetningu.

Markmið frumvarpsins er að taka til baka lagabreytingu frá árinu 2024, lög nr. 102/2024. Sú lagabreyting stuðlar að verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna Íslands og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Þann árangur á nú að gera að engu, auk þess að svipta grásleppusjómenn þeim atvinnuréttindum sem þeim voru tryggð með lögum nr. 102/2024. Þetta hyggst meiri hluti atvinnuveganefndar gera í trássi við ákvæði stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins og hina stjórnskipulegu meðalhófsreglu.

Óumdeilt er að atvinnuréttindi njóta verndar í 72. gr. stjórnarskrárinnar eins og margsinnis hefur verið staðfest með dómum Hæstaréttar Íslands. Þrátt fyrir það leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að grásleppusjómenn verði sviptir þessum réttindum án þess að minnst sé á fyrirsjáanlega skaðabótaskylda íslenska ríkisins, verði frumvarpið að lögum. Er í greinargerð frumvarpsins að engu vikið að því hvernig meðalhófs er gætt og verður ekki annað ráðið en að meiri hluti nefndarinnar vaði í þeirri villu að svipting atvinnuréttinda, líkt og mælt er fyrir um í frumvarpinu, geti átt sér stað án þess að baka ríkinu skaðabótaskyldu.

Þá telja undirritaðir ámælisvert að nefndin leggi fram frumvarp sem er jafn íþyngjandi í garð borgaranna og hér um ræðir án þess að lagt sé í neina undirbúningsvinnu, svo sem samráð við hagaðila, mat á áhrifum eða sjónarmiða sérfræðinga aflað. Vinnubrögð nefndarinnar í þessu máli eru henni og Alþingi ekki til sóma og mótmæla undirritaðir framlagningu málsins harðlega.“

Meiri hlutinn tók málið út úr nefndinni í morgun og leggur það í hendur forseta að setja það á dagskrá þingsins. Ég vil skora á forseta Alþingis að bregðast við svona málsmeðferð og svona frumvarpi með því að leggja það ekki fram og vísa því til baka. Það verður líka áhugavert að sjá það hvort ráðherrar ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkarnir eru virkilega að fara að stunda þessi vinnubrögð hér á hv. Alþingi Íslendinga.