156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegur forseti. Strákar. Fyrir góðan vin minn. Hvernig myndi þér líða ef þú ættir erfitt með að lesa þegar þú ert 15 ára? Skólinn hefur brugðist þér, þú upplifir þig heimskan. Þú gerir allt til að fela þennan veikleika. Þú reynir að lesa og það er hlegið, þú ert smánaður. Það er fátt verra en að vera heimskur og kunna ekki að lesa. Gott ráð til að breiða yfir ólæsið er að beina athygli annarra annað. Leika trúð, rífa kjaft, fara á klósettið, gleyma námsgögnum. Það er meira en full vinna að fela vanlíðan og halda andliti, að það komist ekki upp um þig. Hvernig myndi þér líða að vera skammaður mörgum sinnum á dag, finna að þú ert vandamál, fá tugi Mentor-skilaboða heim; hegðun ábótavant, vantar námsgögn, truflar í tíma. Allir eru betri en þú. Hvernig myndi þér líða að hafa fáar ef nokkrar sterkar karlfyrirmyndir í leik- og grunnskóla, hafa ekki karlmann sem þú getur litið upp til, lært af, fengið ráð, hlegið með, grátið með? Hvernig myndi þér líða að skilaboðin frá samfélaginu væru að þú værir gerandi, hefðir forréttindi, værir hættulegur, skuldaðir samfélaginu fyrir syndir feðra þinna, værir óþarfur? Hvernig myndi þér líða ef kröfurnar á þig væru þær að þú værir með allt þitt á hreinu, þú hefðir skýran tilgang, að þú gætir ekki verið þú sjálfur? Hvernig liði þér að vera 15 ára strákur í þessari stöðu, að þinn heimavöllur væri á skjön við samfélagið, þú værir jaðarsettur og að þín leið væri að taka áhættu, hafa rangt við, vera dæmdur? Þú endar í fangelsi, engin betrun, bara forherðing. Engum þykir vænt um þig, þú getur sjálfum þér um kennt. Þú skiptir ekki máli.