Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Menntun er ein af grunnstoðum samfélagsins. Menntakerfið hefur bein áhrif á framtíð barnanna okkar og samfélagsins alls. En hvað er menntun? Snýst hún aðeins um að afla sér þekkingar eða snýst hún einnig um færni? Viljum við að menntun auki hæfni í utanbókarlærdómi eða viljum við að menntun felist einnig í því að börnin okkar tileinki sér gagnrýna hugsun, samkennd og getu til að leysa vandamál?
Þekking er nauðsynleg en ég tel, virðulegur forseti, að færni til að nýta hana í raunverulegum aðstæðum sé lykillinn að árangri og velsæld. Okkur er tíðrætt um PISA og umræðan í samfélaginu er á þá leið að skólakerfið hafi brugðist, það þurfi að bregðast við með aðgerðum og ekki seinna en strax. Ég er því sammála. En hvernig aðgerðum? Kennarastéttin hefur svo sannarlega sinnt sínu en sífjölbreyttari og stærri nemendahópar í krefjandi aðstæðum og skortur á fjármagni gerir kennurum oft erfitt fyrir. Þetta þekkjum við vel sem höfum haft kennslu að aðalstarfi. Kröfur samfélagsins á skólakerfið eru þær að það eigi ekki einungis að sinna menntun heldur einnig hinum ýmsu uppeldislegu atriðum sem áður voru að mestu í verkahring heimilanna. Sívaxandi kröfur í fjölbreyttu og hröðu samfélagi gera það að verkum að minni tími kennara fer í að sinna fjölbreyttu námi og starfi hvers nemanda. Hin mörgu og sum hver óljósu hæfniviðmið sem eru í núgildandi námskrá hafa tekið of mikla orku frá kennurum og þau eru þrátt fyrir megininntak námskrárinnar svo stýrandi að kennarar upplifa pressu um yfirferð, að klára öll dæmin í bókinni í stað þess að veita nemendum frelsi til að uppgötva, spyrja og ígrunda.
Menntun snýst ekki bara um að klára ákveðinn fjölda verkefna. Hún snýst um að skapa forvitna einstaklinga sem hafa trú á eigin getu og vilja til að leggja sitt af mörkum. Við erum ekki að verða einsleitari sem þjóð, þvert á móti. Hér býr fólk af ólíkum uppruna með ólíkar skoðanir og viðhorf. Menntun í hnattvæddum heimi snýst um að hlusta, setja sig í spor annarra og skilja ólíka menningarheima. Tökum saman höndum og byggjum upp menntakerfi sem þjónar öllum óháð hæfileikum, uppruna eða áhugasviði. Þannig byggjum við upp sterkara samfélag.