156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegur forseti. Síðastliðinn fimmtudag sótti ég ráðstefnu hér í borg á vegum lögreglunnar um öryggis- og varnarmál. Það var tímabært að lögreglan kallaði saman sitt fólk til skrafs og ráðagerða um stöðu öryggis- og varnarmála og stöðu lögreglunnar sem borgaralegrar stofnunar hvað þessi mál varðar. Einnig tóku þátt í ráðstefnunni aðilar utan lögreglu, svo sem frá Landhelgisgæslunni og CERT-IS, og setti hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir ráðstefnuna.

Í ræðu kynnti yfirmaður öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra, Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn, stöðu mála eins og hún birtist í skýrslum greiningardeildar embættisins. Það er óhætt að segja að upplýsingar sem fram komu í máli yfirlögregluþjónsins voru sláandi en þær komu ekki endilega á óvart eins og heimsmyndin er að teiknast upp um þessar mundir. Innrás og síðan átök eins og birtist okkur í Úkraínu og víðar er ekki eina birtingarmynd átaka í heiminum. Öflun upplýsinga er grundvallaratriði í öllum samskiptum og eins og í allri samningatækni eru upplýsingar grundvallaratriði til að ná árangri. En það eru aðferðir við öflum upplýsinga sem við þurfum að vera á varðbergi gagnvart. Samkvæmt því sem fram kom í máli yfirlögregluþjónsins, og raunar annarra sem töluðu á fyrrnefndri ráðstefnu, stöndum við eins og aðrar þjóðir frammi fyrir því að sum erlend ríki safna upplýsingum með þeim aðferðum sem við köllum njósnir. Fyrir liggur að sum ríki stunda njósnir og þá getum við sagt. Ergo: Njósnir eru stundaðar á Íslandi. Spurningin er hvernig við bregðumst við. Svarið fæst ekki hér í dag en grundvallaratriði er að gera sér grein fyrir því að erlend ríki geta verið á höttunum eftir upplýsingum sem við viljum ekki að séu opinberar og einnig er matreiðsla upplýsinga atriði sem við þurfum að hafa í huga. Rétt er að halda því til haga að tengsl geta verið á milli skipulagðra brotahópa sem selja þjónustu sína, hryðjuverkahópa, og tiltekinna ríkisstjórna.

Hér á landi er okkur tíðrætt um fjölþáttaógnir þegar við tölum um öryggis- og varnarmál. Í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá maí 2023 um fjölþáttaógnir segir svo, með leyfi forseta:

„Með öðrum orðum lýsir hugtakið fjölþáttaógnir samtengdu eðli áskorana, margbreytileika gerenda og fjölbreytileika aðferða. Segja má að hugtakið sé myndlíking, sem beitt er til að ná utan um ógnir, togstreitu og það flækjustig sem fylgir breyttu umhverfi alþjóðamála og tæknivæddri samfélagsgerð.“

Herra forseti. Heimsmálin þróast á ógnarhraða (Forseti hringir.) og aðstæður sem fyrir stuttu síðan voru nær óhugsandi eru nú að hluta raunhæfari sviðsmyndir. Því ber að fagna að áskoranir verða greindar og gert ráð fyrir viðeigandi viðbrögðum komi þær upp.