156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil hér vekja athygli á því undarlega verklagi sem hæstv. ríkisstjórn viðhefur varðandi mál sitt er varðar gjörbreytingu á veiðigjöldum. Það er tímaramminn sem mig langar fyrst og fremst að vekja athygli á. Formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, Íris Róbertsdóttir, var í viðtali á Bylgjunni í morgun og lýsti þar þeim stutta umsagnarfresti sem hagaðilar fá. En sömuleiðis lýsti bæjarstjórinn þeirri stöðu að umsagnaraðilar, sem eiga jafn mikið undir og raunin er, fái ekki gögn, sé ekki gert mögulegt að glöggva sig á stöðunni, glöggva sig á málinu til að geta gefið umsagnir sem í ofanálag svona naumur tími er skammtaður til að veita. Umsagnarfresturinn rennur út núna á fimmtudaginn í samráðsgátt. Hæstv. ráðherra atvinnuvega hefur fullyrt í Kastljóssviðtali að málið muni klárast á vorþinginu. Er það kapphlaupið sem orsakar þessa furðulega stífu tímalínu, að málið verði bara að klárast í vor og þess vegna þurfi með öllum tiltækum ráðum að klára umsagnarferlið þannig að hægt sé að mæla fyrir málinu fyrir páskaleyfi þannig að umsagnarfresturinn um málið verði í gegnum dymbilviku og páskaleyfi þeirra sem mestan hag hafa af málinu? Þetta eru algjörlega forkastanleg vinnubrögð. Og síðan er veifað einhverjum viðbótardúsum hér um að landsbyggðin fái nú peninginn í vegina. Heyrðu, það er nú bara mál hér í gangi sem gengur út á það að auka gjaldheimtu til fjármögnunar vegakerfisins sem kallast kílómetragjald og kolefnisgjöld ofan á það. Þannig að þetta er allt einhver sýndarmennska og beinlínis ósvífni.

En, virðulegur forseti, ég vil bara biðja þig um að koma í lið með sveitarfélögum landsins, litlum og millistórum útgerðum sérstaklega, vinnslunni, fólkinu sem starfar við þetta og hvetja hæstv. ríkisstjórn til að framlengja þennan umsagnarfrest því að nú berast af því fréttir að beiðnum (Forseti hringir.) um slíkt hafi beinlínis verið hafnað. Beiðnum um að fá örlítið fleiri daga til að setja álit sitt á blað (Forseti hringir.) varðandi þetta risavaxna hagsmunamál á sama tíma og menn hafa ekki gögn til að glöggva sig á því.