156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Þau lög um veiðigjald sem eru í gildi eru gölluð. Sá ágalli felst aðallega í því að útgerðir sem eiga alla virðiskeðjuna geta ákveðið sjálfar hvaða verðmiða þær setja á aflann sem þær selja vinnslum í eigin eigu. Veiðigjaldið leggst nefnilega einungis á aflann og skiptist þannig að 33% af virði hans fer í veiðigjald en útgerðin heldur eftir 67%. Þessi aðferð tryggir útgerðinni líka tækifæri til að greiða sjómönnum lægri laun sem hefur auk þess neikvæð áhrif á útsvar sveitarfélaga. Hún tryggir þeim líka tækifæri til að lágmarka hafnargjöld. Enginn græðir á þessu fyrirkomulagi nema eigendur útgerðarinnar sem taka þann aukna hagnað bara út annars staðar í virðiskeðjunni.

Ríkisstjórnin hefur boðað að veiðigjöldin verði leiðrétt. Áfram er skiptingin sú að útgerðin fær sama hlutfall af hverri veiðiferð sem þarf að borga þriðjung af henni fyrir afnotin. Í stað þess að útgerðir geti sjálfar ákveðið andlagið sem þær þurfa að greiða veiðigjald af, munu þær þurfa að selja aflann til eigin vinnslu á markaðsverði. Þetta mun leiða til þess að sjávarútvegsfyrirtæki munu þurfa að borga rétt og sanngjörn veiðigjöld. Í stað þess að gjöldin dugi ekki fyrir kostnaði fyrir þjónustuna sem ríkið veitir sjávarútvegi munu þau afla fjármuna sem munu nýtast í bráðnauðsynlegar innviðafjárfestingar, m.a. í vegakerfið á landsbyggðinni. Samkvæmt nýkynntri fjármálaáætlun á sú viðbót að nema 7 milljörðum kr. strax á næsta ári.

Virðulegi forseti. Fyrir liggur að arðsemi í sjávarútvegi er langt umfram það sem gengur og gerist í íslensku viðskiptalífi og hún verður áfram tvisvar sinnum meiri eftir að veiðigjöldin verða leiðrétt. Í dag er staðan þannig að einungis 100 af um 900 útgerðum sem borga veiðigjöld eru að fullnýta frítekjumark sitt. Samhliða leiðréttingunni verður frítekjumarkið hækkað verulega og þrepaskipt. (Forseti hringir.) Það mun leiða til þess að áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi verða hverfandi og í flestum tilfellum engin.