Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Meiri hluti atvinnuveganefndar hefur hafið frumkvæðismál sem snýr að því að færa veiðistjórn grásleppu í fyrra horf þar sem byggt verði á dagakerfi í stað núgildandi laga sem sett voru í fyrra í mikilli andstöðu sjómanna. Þau lög byggðu á kvótasetningu á frjálsu framsali veiðiheimilda með þeim afleiðingum að fjöldi báta fær enga eða litla úthlutun svo það borgar sig ekki að fara til veiða. Þeir sem hafa fjárfest í bátum og búnaði sitja uppi með verðlausar eignir og sviptir atvinnurétti. Við blasir mikil samþjöppun í greininni þar sem nú eru engin stærðarmörk á bátum sem stunda þessar veiðar eins og áður var, en í áratugi hafa minni bátar við strendur landsins stundað þessar veiðar samhliða strandveiðum síðastliðin ár með miklum samlegðaráhrifum. Mikið ákall hefur verið frá grásleppusjómönnum um að fella úr gildi þessi ólög sem sett voru á síðasta ári og fólu m.a. í sér mikla sérhagsmunagæslu og samþjöppun útgerða og veiðiheimilda.
Meiri hluti atvinnuveganefndar gerir miklar athugasemdir við þá bókun sem minni hluti atvinnuveganefndar lagði fram á fundi nefndarinnar í morgun þegar þetta frumkvæðismál um veiðistjórn grásleppu var tekið út til þinglegrar meðferðar. Þetta var gert samkvæmt þingsköpum eftir vandaða vinnu lögfræðinga á nefndasviði við undirbúning málsins sem við teljum að standist alla skoðun. Þeir sem hafa verið að stunda veiðarnar undanfarið undir núverandi kerfi og voru kannski sáttir við að kvótasetja eru mjög ósáttir í dag þegar reynsla hefur komið á kerfið. Meiri hluti atvinnuveganefndar er hér að bregðast við ákalli sjómanna um að taka upp fyrra veiðistjórnarkerfi, dagakerfið, og telur að miklir almannahagsmunir liggi hér undir ásamt byggðasjónarmiðum og atvinnufrelsi einstaklinga, sem má nú ekki gleyma og Sjálfstæðisflokkurinn ætti að taka til sín.