raforkulög.
Herra forseti. Ég byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu, ég ætla að leyfa mér að segja mikilvæga frumvarpi. Ég er með eina spurningu handa ráðherranum. Mig langar að forvitnast um það þegar sala á sér stað til stórnotenda í gegnum þetta heildsölufyrirkomulag, hvort það sé gert ráð fyrir því í þessum lögum að kaupandinn gæti mögulega skilað raforkunni aftur til heildsölunnar eða jafnvel nýtt raforkukaup sín til að nota í smásölu ef viðkomandi þarf ekki að nota orkuna, t.d. við ofnstopp eða ef upp koma bilanir.