156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[14:09]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki 100% klár á því. Ég hugsa að við séum ekki að gera neinar breytingar á gildandi rétti hvað þetta atriði varðar í þessu frumvarpi en ég ætla að spyrjast fyrir um þetta og ég skal svara hv. þingmanni í ræðu seinna þar sem ég tek þá saman helstu spurningar sem hafa vaknað.