156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[14:11]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta upp. Ég get svo sem nefnt að í raforkuöryggisfrumvarpinu sem er komið inn í atvinnuveganefnd, geri ég ráð fyrir, er sérstaklega tekið á þessu að því er varðar kerfisstjórnunina og kerfisþjónustu Landsnets og verið að rýmka til í rauninni heimildir til að semja við þá raforkunotendur um að draga úr álagi og nýta þannig þann sveigjanleika sem er fyrir hendi í raforkukerfinu og á eftirspurnarhliðinni. Eins og ég lofaði áðan þá mun ég gefa honum fyllri svör við þessari spurningu sinni en ég geri ekki ráð fyrir að við séum í þessu frumvarpi að raska í rauninni neinu eða breyta neinu af því sem er í gildandi rétti og því sem er gert ráð fyrir nú þegar og er heimilað nú þegar.