156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[14:34]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Mér fannst hv. þingmaður líka koma að ýmsum þáttum sem ég held að sé mjög mikilvægt að við ræðum vegna þess að eina ástæðan fyrir því að lítið gerðist í orkumálum, m.a. í þessu, var að það var ákveðin tortryggni í þjóðfélaginu og sömuleiðis gríðarleg andstaða gegn virkjanaframkvæmdum. Þegar við hv. þingmaður tókum við í byrjun síðasta kjörtímabils var sameinað loksins umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið en allt orkuráðuneytið samanstóð af tveimur einstaklingum, sem segir okkur kannski í hvaða stöðu við vorum komin. Þetta hefur auðvitað lagast gríðarlega og sameiningar stofnana hafa hjálpað til og við erum núna að ræða hér mál sem ganga út á þá vegferð sem vorum að fara í, að fara í svokallaða eina stofnun eða „one stop shop“, svo dæmi sé tekið. Þó svo að við höfum breytt mjög miklu þá fann maður það þegar ýmis svona mál komu inn í þingið síðast, og þá er ég ekki sérstaklega að vísa til þessa heldur líka þess sem hv. þingmaður er að vísa til, að gæta öryggis, sem og hv. þingmaður hér á undan í ræðu, Þórarinn Ingi Pétursson, að það náðist ekki einu sinni í gegnum þingið að skilgreina hverja við ætlum að verja ef það kemur til skömmtunar. Ég held að þetta sé mjög mikið vegna þess að menn hafi ekki rætt þetta. Það hefur verið tortryggni. Menn hafa talað um það áður en við förum í eitthvað sem hefur löngu verið farið í, fyrir 22 árum síðan, að þá þurfi að gera einhverja hluti. Þess vegna er mjög mikilvægt að við ræðum þetta og það er náttúrlega ótrúleg breyting að finna tóninn á hv. Alþingi núna miðað við það sem var áður. Hv. þingmaður getur verið mjög stoltur af orkuþættinum á síðasta kjörtímabili því að það hefur aldrei verið jafn mikið gert á jafn skömmum tíma en það veitti heldur ekki af og við verðum að halda áfram núna því að við megum engan tíma missa.