156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[14:36]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni svo sannarlega fyrir að eiga orðastað við mig varðandi þetta. Ég er á þeirri skoðun að við höfum á einhverjum tímapunkti einhvern veginn haldið að raforkuframleiðsla, orkuframleiðsla, þessir þættir sem hafa byggt upp Ísland á undanförnum 50 árum væru einhvers konar eilífðarvél. Við værum einhvern veginn komin bara með einhvern ramma og hann myndi bara virka. Við þyrftum ekki að leita að orku, við þyrftum ekki að virkja. Ég og hv. þingmaður höfum haft áhyggjur af því hvað varðar leit að t.d. háhita og svo má lengi telja og þá gerist það sem ég held að við séum að súpa svolítið seyðið af og við þurfum að vera samhent í, hvort sem við erum í stjórn eða stjórnarandstöðu, í ríkisstjórn á hverjum tíma, að við missum ekki sjónar á boltanum, að þetta er þetta er verkefni sem fer ekkert í burtu frá okkur, hvort sem það er þegar nýir orkugjafar koma inn og við setjum ramma utan um þá eða bara tækniframfarir sem við þurfum að bregðast við. Og því miður er það þannig að við erum allt of oft að elta þróunina. Við berum okkur saman við aðrar þjóðir og við sáum það til að mynda bara í eftirköstunum af innrás Rússa í Úkraínu hvernig orkumarkaðurinn á Evrópusvæðinu fór á hliðina. Við þurftum ekki að taka sama skell en við miðum okkur við það sem aðrir eru að gera. Við erum ekki tengd evrópska orkunetinu eins og staðan er í dag og það er ekkert sem lítur út fyrir að við verðum þar. En það breytir ekki því að þetta er eilífðarverkefni og verður það, til þess að tryggja að við getum haldið áfram að nýta okkar grænu orku sem best til framdráttar fyrir hag þjóðarinnar.