raforkulög.
Virðulegur forseti. Það ber auðvitað ekki mikið í milli hjá mér og hv. þingmanni og ég þakka fyrir bæði hans ræðu og andsvar. Ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann talaði um — ég notaði nú þá samlíkingu að fólk hafi einhvern veginn verið komið með þá tilfinningu að þegar Ingólfur Arnarson mætti til Íslands hafi hann sett í samband heita vatnið og þetta bara virkað þannig og við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þessu. Það er bara stór misskilningur. En mín tilfinning var sú á síðasta kjörtímabili, alla vega í upphafi þess, að menn væru þar.
Hv. þingmaður nefnir ýmsa orkukosti. Sérstaða okkar hefur verið sú að þó að það sé hægt að nýta heitt vatn um allan heim þá höfum við verið fremst þjóða án nokkurs vafa þegar að því kemur. Við vorum komin í mikinn vanda sem enginn talaði um en við settum 1,5 milljarða í það verkefni að leita að heitu vatni í fyrra. Ég veit að hv. þingmaður þekkir mjög vel aðstæður á Reykjanesskaga. Við vorum komin á þann stað að finna það mikið af nýju heitu vatni að ef það hefði komið frostavetur eins og árin þar á undan þá hefðum við getað haldið öllum Reykjanesskaga frostfríum með nýja heita vatninu en miðað við þær upplýsingar sem ég fæ úr hv. fjárlaganefnd þá eru blikur á lofti þar og ég vona að hæstv. ríkisstjórn fari og haldi áfram því verkefni vegna þess að það má ekkert út af bregða. Það var nú bara að byrja að gjósa í morgun og við skulum vona að það verði ekki mikill skaði af því.
Orkumál eru um margt. Þau snúa svo sannarlega að lífskjörum fólks og það er líka þjóðaröryggismál að við séum ekki með öll eggin í sömu körfunni og okkur veitir ekkert af heitu vatni úti um allt land. Á því svæði hvers hag hv. þingmaður ber mjög fyrir brjósti, Reykjanesskaga, þurfum við að hafa augun sérstaklega á boltanum og sjá til þess að við verðum áfram með heitt vatn en það gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf að leita að því. Það hefur gengið mjög vel fram til þessa, þ.e. á síðustu tveimur, þremur misserum, en það verður að halda áfram.