raforkulög.
Herra forseti. Mig langar aðeins að eiga orðastað við hv. þm. Jens Garðar Helgason. Ég þakka honum fyrir ágæta yfirferð. Nú hefur frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, verið gagnrýnt fyrir ýmsa ókosti. Alþýðusamband Íslands hefur bent á að frumvarpið veiti ekki nægilega vernd fyrir heimili og smærri fyrirtæki gegn verðhækkunum á raforku. Þrátt fyrir að tryggt sé að þessi hópur hafi forgang að raforku er ekkert í frumvarpinu sem kemur í veg fyrir að almenningur og smærri fyrirtæki lendi í verðsamkeppni við stórnotendur raforku sem geti leitt til hærra raforkuverðs til þessara aðila. Mig langar aðeins að biðja hv. þm. Jens Garðar Helgason að bregðast við og tjá sig um þessa gagnrýni frá Alþýðusambandi Íslands.