raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir þessa spurningu. Þegar við tölum um að það sé ekki nægileg vernd fyrir heimili og smærri fyrirtæki, hver er þá eiginlega skilgreiningin á smærri fyrirtækjum? Ef við horfum á Evrópu, við skulum ekki fara neitt lengra, eru eiginlega öll fyrirtæki á Íslandi smærri fyrirtæki. Við erum svo heppin að hafa byggt upp stórnotendur í raforkukaupum sem hafa orðið til þess að við höfum byggt upp það raforkukerfi sem við eigum þó í dag. Það eru stórnotendurnir sem hafa í rauninni tryggt það að við höfum getað byggt upp raforkukerfið. Auðvitað eigum við að tryggja það að heimili og smærri fyrirtæki njóti ákveðinnar verndar en við erum samt alltaf í rauninni að reyna að plástra vandamálið. Vandamálið er að það er ekki næg orka og það þurfum við að takast á við, að búa til meiri orku. Í orkuskorti þá hækkar verðið og það er nú enn þá verra þegar við getum ekki einu sinni flutt þá orku sem þó er til í kerfinu á milli staða.