raforkulög.
Herra forseti. Í þessari 1. umræðu um frumvarp hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingu á raforkulögum er varðar raforkuviðskipti vil ég leggja nokkur orð í púkkið. Þetta er, eins og fram hefur komið, mál sem var til vinnslu undir forystu sama ráðuneytis í fyrri ríkisstjórn og ég hef haldið því til haga hér að það sé ekki endilega gæðastimpill á málum að þau hafi verið til meðferðar í fyrri ríkisstjórn. Hér er mál þetta er varðar í meginatriðum hátternisreglur á raforkumarkaði til komið og varðar það raforkuviðskipti. Það á auðvitað eftir að fara í gegnum vandaða meðferð umhverfis- og samgöngunefndar þegar þar að kemur en ég held að stóra myndin skipti máli í þessum efnum. Í hv. atvinnuveganefnd er núna verið að fjalla um, eins og það hefur verið nefnt af gestum nefndarinnar, frumvarp er tekur á því þegar allt er farið til fjandans, þótt það standi ekki með beinum hætti í frumvarpstextanum. (Gripið fram í.) Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson reyndi að landa brandara og ég hafði ekki nógu góð eyru til að grípa hann. Það er þetta mál sem nú liggur fyrir og síðan sjáum við fram á frekari meðferð mála næsta haust, ef ég skil upplegg hæstv. ráðherra rétt.
Auðvitað ber þetta að einhverju marki með sér bútasaum hvað lagfæringar á regluverkinu varðar, sem er auðvitað að hluta til komið vegna þeirrar stöðu sem við höfum komið okkur í sem samfélag á undanförnum áratugum þar sem við höfum einfaldlega framleitt of lítið af rafmagni og opnað fyrir of fáa nýja kosti. Nóg er til af þeim kostum sem eru hagkvæmir, bæði framkvæmdalega, rekstrarlega og umhverfislega, með hóflegum umhverfisáhrifum miðað við arðinn og áhrifin sem virkjunin skilur eftir. Það hefur með einhverjum hætti verið okkur býsna mótdrægt, þetta heildarkerfi og alveg yfir í það er snýr að umhverfismati framkvæmda og þar fram eftir götunum. Við værum ekki að horfa, held ég, á þessa frumvarparunu sem við stöndum frammi fyrir núna ef okkur hefðu ekki verið svona mislagðar hendur á fyrri stigum. Eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason kom inn á hér áður þá þurfum við að grípa til allra þeirra aðgerða og gera þær lagfæringar á regluverkinu sem mögulegt er til að létta undir með þeim verkefnum sem sátt er um, eins mikil sátt og getur orðið í þessum efnum. Við vitum að það verður aldrei fullkomin sátt um alla virkjunarkosti. Til eru aðilar, einstaklingar og hópar sem eru bara í prinsippinu á móti frekari orkuvinnslu. Það verður bara að hafa sig. Sátt mun aldrei nást á milli þeirra sem vilja framleiða meiri raforku á Íslandi og þeirra sem vilja ekki gera meira eða jafnvel draga úr því sem þegar hefur verið gert.
Það verður auðvitað að hafa í huga að hér heima erum við með lokað kerfi. 85% orkunnar fara til, ef ég man rétt, 11 stórnotenda. Það gæti verið smáskekkja í þeirri tölu en hún er ekki mikil hvað fjöldann varðar. Þau 15% sem út af standa fara til þessara litlu og millistóru fyrirtækja og heimila landsins. Það er í rauninni í þessum hópi, þessum hluta markaðarins sem ég held að flestir hér inni hafi áhyggjur af, ef svo má segja, síðari tíma slag um orku til notkunar fyrir heimili eða lítil og millistór fyrirtæki. Væri framboðið með þeim hætti sem æskilegt er þá væri pressan á þetta minni ef við horfum á heildarmyndina, en hún væri alltaf til staðar. Ég held að í því góða samfélagi sem við byggjum hér, með þær góðu aðstæður sem við höfum til uppbyggingar rekstrar og fyrirtækja, verði alltaf eftirspurn eftir þeirri raforku sem framleidd verður. Ég held að ótti manna við það að hér verði framleitt verulegt umframmagn miðað við það sem hægt er að selja á skynsamlegum verðum sé óþarfur. Við þurfum bara að ná að forma regluverkið, aðgang að verkefnum og þar fram eftir götunum með þeim hætti að menn og fyrirtæki komist áfram. En auðvitað má segja að kerfið sé byggt upp í kringum stórnotendurna. Það má með alveg þokkalegum rökum segja að kostnaðurinn við uppbyggingu dreifinetsins og virkjunarkerfisins eins og það liggur núna sé borinn af þessum stóru kaupendum sem í dag, ef ég man rétt, eru 11 talsins. Um þetta hefur verið samfélagsleg sátt í meginatriðum þar til nýlega. Það má eiginlega segja að þessi mynd sem er að teiknast upp núna, kannski vegna þeirrar vegferðar sem við höfum verið á síðan 2003 þegar fyrsti orkupakkinn er innleiddur hér 2003 — eiginlega má segja að með þeirri vegferð sé vikið frá því uppleggi sem hér var viðhaft frá því að fyrstu stóriðjusamningarnir eru gerðir og sú mikla uppbygging átti sér stað í framhaldi af þeim.
Á nokkrum stöðum í frumvarpinu er vísað til REMIT-reglugerðar ESB. Ég held að umsagnaraðilar margir taki undir það sem í henni stendur en það er nauðsynlegt að halda því til haga við þessa umræðu að ég held að ég muni það rétt að sú reglugerð hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn, bara svo við höfum það í huga, þó að auðvitað sé hægt að hafa til hliðsjónar það sem þar kemur fram og þar stendur. Eins og það er orðað í umsögn Landsvirkjunar í samráðsgátt 18. október 2023 þegar hæstv. þáverandi ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, lagði málið inn, með leyfi forseta:
„Fram kemur að um sé að ræða lagasetningu sem fylgir evrópskri fyrirmynd en þó ekki innleiðingu erlendu gerðarinnar í heild sinni. Gert er ráð fyrir að lögin verði útfærð nánar í reglugerð. Landsvirkjun áréttar mikilvægi þess að vanda til verka og gæta þess að ekki sé gengið lengra en þörf er á, að útfærsla nýrrar löggjafar feli ekki í sér gullhúðun Evrópulöggjafar og að tekið verði tillit til sérkenna íslensks raforkumarkaðar.“
Ég held að mikilvægt sé að við höfum þetta í huga þegar þetta er unnið í hv. umhverfis- og samgöngunefnd (Gripið fram í: Atvinnuveganefnd) — nú gleðst ég sérstaklega. Þetta verður í nefndinni minni. Þetta verður auðvitað í hv. atvinnuveganefnd. Það var sérstaklega kosið um það til hvaða nefndar tiltekið mál hæstv. ráðherra gekk fyrir stuttu síðan og ég hef einhvern veginn verið með niðurstöðu þeirrar atkvæðagreiðslu í kollinum þegar ég gaf mér að þetta færi til hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Það leiðréttist hér með. Í öllu falli þá finnst mér skipta mjög miklu máli að við höfum það í huga að það sé engri svokallaðri gullhúðun, blýhúðun eða hvað sem við viljum kalla það, hleypt í það regluverk sem hér fer inn og það verði með þeim leiðum sem hægt er og skynsamlegt er tekið tillit til sérkenna íslensks raforkumarkaðar. Bæði við í þinginu og ráðherrar með útfærslu reglugerðarheimilda eigum það til að ganga helst til hratt um gleðinnar dyr hvað það varðar að bæta við sérstökum áhugamálum, annaðhvort ráðherra, nefndarmanna eða embættismanna sem aðstoða við vinnslu mála. Í svona mikilvægum málaflokki verðum við að gæta okkar sérstaklega. Ég veit að það er í gangi vinna sem var sett af stað af fyrrverandi hæstv. ráðherra hvað það varðar að vinda ofan af svona íþyngjandi nálgun innan þessa málaflokks og ég vona að henni verði haldið áfram þannig að gagn verði af.
Örstutt um áhrifamatið. Eins og segir hér, með leyfi forseta:
„Frumvarpinu er ætlað að skapa umgjörð fyrir skipulegt viðskiptakerfi raforku, mæla fyrir um hátternisreglur á raforkumarkaði og um eftirlit. Traust umgjörð og virkt viðskiptakerfi stuðlar að auknu gagnsæi í verðmyndun á raforkumarkaði.“
Hér er tilgreint að viðbótarkostnaður vegna raforkueftirlits sé áætlaður 44–50 millj. kr. á ári. Eins og hér segir aftur, með leyfi forseta: „Á móti kemur að gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs muni aukast um 46 millj. kr. vegna þeirrar 20% hækkunar á raforkueftirlitsgjaldi sem lögð er til í frumvarpinu.“ Áfram segir: „Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það muni hafa í för með sér áhrif á afkomu ríkissjóðs.“
Verkefnið er auðvitað umfangsmikið og þarna er væntanlega gert ráð fyrir að það verði hér um bil tveir starfsmenn sem standi að baki þessari kostnaðarhækkun upp á 44–50 milljónir á ári. Ég vil bara nefna þetta hér sérstaklega í því ljósi að iðulega verður áhrifamatið og kostnaðarmatið heldur lausbeislað, eins og við þekkjum. Því vildi ég nefna þetta sérstaklega sem hvatningu fyrir okkur og þá sem við verkefnunum taka til þess að ganga hægt um gleðinnar dyr hvað umfang og kostnað varðar, því að kostnaðurinn af þessu speglast áfram í raforkueftirlitsgjaldinu hverju sinni og þar eru tölurnar auðvitað fljótar að hækka. Eins og segir í frumvarpinu þá eru 46 milljónir áætlaðar á grundvelli 20% hækkunar þess sem er fljótt að hækka hlutfallslega ef þörf verður á frekari mannafla eða hvað sem það skyldi nú vera sem kallar á aukin útgjöld vegna verkefnisins.
Aftur að stóru myndinni. Við þurfum að komast á þann stað að framleiða hér meira rafmagn en ekki jafn mikið eða minna eins og sumir horfa til. Við þurfum að liðka fyrir regluverki, bæði hvað leyfi varðar og þessi möt öll, þau mörgu nálaraugu sem hvert verkefni þarf að fara í gegnum. Síðan þurfum við sömuleiðis að komast á þann stað að þau verkefni sem bærileg sátt er um — eins og ég sagði áðan þá verður aldrei full sátt, það er útópísk hugmynd. Við í stjórnmálunum þurfum því að hafa kjark til að taka af skarið og klára þau mál sem forsvaranleg sátt er um. Það endurspeglast til að mynda í nýtingarhluta rammaáætlunar eins og hún liggur fyrir. Af því að þetta er kannski að einhverju marki á almennum nótum hjá mér þá vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að taka til sérstakrar skoðunar afstöðu sína er varðar það að kostir í verndarflokki rammaáætlunar fari sjálfkrafa og strax í friðlýsingarfarveg á grundvelli náttúruverndarlaga. Það var ekki skilningur fyrri ráðherra og ég held að þar sé að nokkru marki verið að setja kíkinn fyrir blinda augað, alla vega túlka þetta regluverk með þeim hætti og lesa út úr því það sem endurspeglar kannski einhverja pólitíska löngun en ekki meiningu regluverksins eins og það var sett og varðar raforkuframleiðsluna sjálfa.
Hv. þm. Jens Garðar Helgason fór ágætlega yfir kostina í ræðu sinni sem við þurfum að horfa til. Ég tek undir með hv. þingmanni að við ættum í ljósi þessarar afstöðu núverandi hæstv. ráðherra, að kostir í verndarflokki fari sjálfkrafa í friðlýsingarferli, að leggja sérstaka áherslu á það að skilja kosti eftir í biðflokki frekar en að færa þá í verndarflokk. Ég þekki alveg sjónarmiðin um að biðflokkur sé ætlaður fyrir kosti sem vantar upplýsingar um en í raun hefur verið horft með öðrum hætti í tilteknum tilvikum á þann flokk. Það má finna því stað í ræðum í þingsal um mál sem hafa verið hér til umræðu á fyrri stigum. Ég ætla að láta þetta gott heita við þessa fyrri ræðu mína í 1. umræðu og óska hv. atvinnuveganefnd góðs gengis í meðhöndlun sinni á málinu.