raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég er ánægður að heyra viðhorf hv. þm. Bergþórs Ólasonar þegar kemur að þessu því að hv. þingmaður vísar réttilega til þess að það eru margir möguleikar. Það er meira að segja hægt, og ekki í stórum mæli meira að segja, að búa til rafmagn með lághita og það er gert. Síðast þegar ég skoðaði það var það gert með samstarfi íslensks og sænsks fyrirtækis. Ég hef nú ekki fylgst nákvæmlega með því. Svo ertu auðvitað með birtuorkuna, vindorkuna í litlum mæli. Það þarf ekki alltaf að vera stórt. Reyndar tók fyrrum Orkustofnun út hvað væru miklir möguleikar í litlum vatnsaflsvirkjunum og stofnunin var með 2.500 smávatnsaflskosti sem gátu framleitt jafn mikið og öll framleiðsla Íslands í dag. Ég vona að því verði haldið áfram. Það er átak í að efla smávatnsaflsvirkjanir sem er á forræði Umhverfis- og orkustofnunar og ég hvet hv. nefndir til að skoða hvernig það gengur vegna þess að oft á tíðum þarftu bara að vekja athygli. Þetta eru nú aðallega bændur eða landeigendur sem eiga þessa möguleika og það er alger misskilningur að þetta sé stórt eða áberandi í umhverfinu, þvert á móti. Ég nefndi 300 vatnsaflsvirkjanir hér áður, 1950. Ég held að þær hafi meira að segja verið 500. Ég ætla nú ekki að segja sögu Bjarna frá Hólmi hérna á 30 sekúndum en hann dó langt fyrir aldur fram, bjó á Hólmi rétt við Kirkjubæjarklaustur og hann bjó til 100 slíkar virkjanir. Fyrsta virkjunin var gerð á sama tíma og Elliðaárstöð var gerð en hans verkfæri og sömuleiðis það sem hann nýtti til gerðar virkjunarinnar kom úr skipshræjum af sandinum á meðan allt það nýjasta og besta var notað í Elliðaárstöð. Þarna eru mikil tækifæri fyrir fólkið í landinu, öllum til heilla, og ég er ánægður að heyra viðhorf hv. þingmanns hvað þetta varðar.