156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[15:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni andsvarið. Það var nú ekki sérstök spurning í seinna andsvari en svona til að ná utan um breiðu myndina í þessum efnum þá eigum við að nýta allar þær auðlindir sem landið gefur okkur nema þá að við tökum sérstaka upplýsta ákvörðun um að gera svo ekki. Þetta er auðvitað miklu víðtækara heldur en fallvötnin og jarðvarminn. Þar eru undir hvalveiðar, nytjastofnar sjávar, olía, gas. Þetta á allt að vera undir. Við eigum að taka umræðu um þetta allt saman og komast þá að skynsamlegri, ef nokkur kostur er — það verður auðvitað aldrei afstaða allra að góð niðurstaða hafi fengist, en við eigum að vera óhrædd við að ræða okkur í gegnum alla þá kosti sem eru til auðlindanýtingar á Íslandi. Það skiptir ekki máli hvort það er þá þari í Breiðafirði eða hvað sem það kann að vera, við eigum bara að fara í gegnum þetta allt saman. Um eitthvað af þessu munum við eflaust á endanum vilja segja: Heyrðu, þetta er ekki fyrir okkur, þetta bara gengur gegn öðrum markmiðum sem við höfum náð sátt um. En holt og bolt eigum við alltaf að ganga út frá því sem fyrstu nálgun að nýta þær auðlindir sem landið gefur okkur.