raforkulög.
Herra forseti. Við ræðum þetta ágæta mál hér sem er frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, um raforkuviðskipti. Eins og hefur komið fram í umræðunni í dag er þetta eitt af þeim málum sem fyrrverandi hæstv. ráðherra var með í sínu ráðuneyti orkumála. Eins og kemur fram í frumvarpinu var þetta í samráðsgáttinni í október 2023. Þetta er eitt af mörgum málum og það verður nóg að gera í atvinnuveganefnd á næstu vikum miðað við hvað dælist þar inn af frumvörpum og margt sem snýr að orkumálunum.
Tilgangur þessa frumvarps er að mæla fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum og eftirlit til að stuðla að gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði eins og kemur fram í greinargerð. Raforka er forsenda nútímalegrar búsetu og atvinnustarfsemi hér á landi sem og annars staðar. Því er mikilvægt að tryggja gagnsæi og heiðarleika í verðmyndun á heildsölumarkaði. Það er líka komið í greinargerðinni inn á það ástand sem hefur verið og að hverju hefur verið unnið varðandi raforkuviðskipti í Evrópu á undanförnum áratugum. Þar er svo sannarlega eitthvað sem við þurfum að hafa í huga, að það ástand sem hefur skapast þar gerist ekki hjá okkur þó að við höfum kannski að mörgu leyti farið vill vegar á undanförnum árum þar sem okkur hefur ekki tekist að auka framboð á raforku.
Í meginefni frumvarpsins kemur síðan fram að með frumvarpinu séu settar fram nýjar skilgreiningar á hugtökum sem tengjast raforkuviðskiptum og mælt fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum. Kveðið er á um bann við markaðssvikum og ólögmætum innherjaviðskiptum. Einnig er fjallað um opinbera birtingu innherjaupplýsinga, skráningu markaðsaðila og tilkynningarskyld viðskipti. Í þessu frumvarpi er einnig lögð til skilgreining á hugtökunum heildsölumarkaður raforku og viðskiptavettvangur raforku. Heildsölumarkaður raforku tekur til allra viðskipta með heildsöluorkuafurðir óháð því hvar og hvernig viðskiptin fara fram. Viðskiptavettvangur raforku felur í sér skipulagðan vettvang fyrir raforkuviðskipti. Rekstraraðila viðskiptavettvangs ber að uppfylla tiltekin lágmarksskilyrði til að tryggja að viðskipti á vettvanginum fari fram í samræmi við hátternisreglur.
Í umræðunni hér í dag hefur aðeins komið fram það mál sem var mælt fyrir fyrir ekki svo löngu sem snýr að raforkuöryggi. Það mál er skilgreint þröngt og hefur aðeins komið fram í ræðum hv. þingmanna í dag en þó verður farið í raforkuöryggi í stærri myndinni í haust. Við sjáum að það eru ákveðnir hlutir sem hægt er að tengja þessi mál saman með. Í málinu sem við erum að fást við í atvinnuveganefnd um raforkuöryggi, aðgengi íbúa landsins og minni aðila, sem sagt ekki stóriðjunnar, að tryggja aðgengi að raforkunni — vegna þess að það er að mörgu leyti svolítið skylt þessu og hefur aðeins komið upp hér í dag — mætti skilgreina og bara vekja athygli á því að við erum rétt að fást við það mál þessa dagana, þar þykir þeim sem hér stendur ekki tekið með nægilega öflugum hætti á þjóðaröryggisvinklinum í því máli. Það mætti skrifa það frumvarp með allt öðrum hætti sem snýr að þjóðaröryggismálum.
Sá sem hér stendur ætlaði kannski ekki að koma inn á það sem hv. þm. Bergþór Ólason kom inn á hér áðan varðandi það mál í nefndinni en þar hefur einmitt sá sem hér stendur talað um að þetta sé raunverulega frumvarp um það þegar allt fer til helvítis. Það er það sem málið snýst um í eðli sínu. Í því máli þyrfti þá kannski að skrifa það frumvarp bara með hnitmiðaðri hætti vegna þess hvert málefnið er en það er búið að flækja málið það mikið að það er orðið hluti af einhverju sem er svolítið óskylt innihaldi málsins. Það mætti alveg vera oftar hérna hjá okkur að við töluðum skýrt um málin og frumvörp verða stundum hálfskrýtin þegar þau fara ekki bara inn í kjarna málsins. Við höfum kannski verið að átta okkur á því í hv. atvinnuveganefnd í síðustu heimsóknum um hvað málið snýst. Þegar við fáum umsagnaraðila fyrir hv. atvinnuveganefnd förum við líka kannski að skilja betur, og í umsögnum umsagnaraðila, um hvað málið snýst raunverulega. Þetta tengist allt. Það er mjög gott að tala og gott að ræða raforkumálin en þetta er svona dæmi sem ég vil koma að varðandi raforkuöryggið, að við höldum okkur við kjarna málsins. Það mál snýr raunverulega að því að bæta viðnámsþrótt samfélagsins; hreint og beint þjóðaröryggismál.
Við erum búin að koma víða við og hér hefur verið rætt töluvert um jöfnun flutningskostnaðar. Það er dreifikerfið sérstaklega. Það hafa náttúrlega orðið hækkanir í flutningskerfinu, háspennta kerfinu, á undanförnum árum, enda er mikil uppbygging í gangi og einhvern veginn þarf að tækla málið. Í dreifikerfinu hefur orðið gríðarlega mikil uppbygging líka og búið að vera að leggja strengi um allar sveitir. Um 80% af dreifikerfi Rariks er komið í jörðu eftir að það átak hófst. Eftir mikil óveður 1991 og 1995 var ákveðið að fara í það mál. Það má reikna með að því verkefni verði að fullu lokið hjá Rarik innan tíu ára. Nú er unnið hörðum höndum að því að koma strengjum í jörð og þriggjafasavæðasveitir landsins, það er stórt og mikið mál og allt tengist þetta þessu máli sem við erum að fást við hér.
Raforkuframleiðsla á Íslandi er nánast það sem skapar þau lífskjör sem við búum við í dag, ásamt fiskveiðunum og fiskvinnslu og svo ferðaþjónustunni og síðan því sem kemur að skapandi greinum. En raforkan er alltaf kjarninn í því efnahagslífi sem við búum við í dag, þ.e. bæði nýting á jarðvarmanum og framleiðsla á raforku. Þau lífsgæði sem við búum í dag væru ekki til staðar án þessarar öflugu starfsemi. Það er hvergi framleidd meiri raforka á hvert mannsbarn heldur en á Íslandi, 58 MW síðast þegar ég heyrði. Noregur er númer tvö í heiminum með 28 eða 29 MW. Það ætti þá að sýna fram á hve stór áhrif þetta hefur á það að skapa þau lífskjör sem við búum við.
Hvað þarf að gera? Það eru kannski fjórir helstu punktar í þessari umræðu varðandi raforkukerfið í heild sinni og koma inn á þessi raforkuviðskipti. Auðvitað er það að virkja meira, sem er náttúrlega bara þessi grunnpunktur sem við þekkjum öll. Ég held að allir hv. þingmenn séu komnir á þá skoðun og hafi fullan skilning á því að þetta getur ekki haldið áfram með þeim hætti sem við höfum búið við núna á undanförnu misserum og mun versna mikið á næstu árum. Það mun taka langan tíma að raunverulega koma þessu á réttu brautina þannig að við megum reikna með að það verði hamlandi aðgengi að orku, sérstaklega í slæmum vatnsárum eins og við upplifðum 2014 og síðan á síðustu tveimur, þremur árum hafa komið tvö slæm vatnsár. Hlákurnar í vetur björguðu okkur frá því að vera í algjöru neyðarástandi núna. Það komu þrjú hlákuskeið í vetur þar sem hlánaði verulega og bætti verulega í lónin og það kom okkur í gegnum þetta ástand. Þetta var tilfallandi, við getum ekki búið við að þannig sé staðið að málum.
Punktur tvö sem ég vil kannski koma inn á er að styrkja flutningskerfið sem er bara þetta lykilatriði, að tengja saman norður- og suðursvæðið í raforkuframleiðslunni og nýta orkuna betur. Þar kom hv. þm. Jens Garðar Helgason áðan inn á innviðaskuld Landsnets upp á 86 milljarða eins og hún er reiknuð í dag. Í fyrra hófust framkvæmdir, í júlí, við Suðurnesjalínu 2 og þessar þrjár framkvæmdir sem þurfa að koma til á næstunni, Blöndulínu 3 og Holtavörðuheiðarlínu 1 og 3 til að tengja Akureyri við Hvalfjörð og Grundartangasvæðið. Þetta eru hin forgangsverkefnin þannig að eftir að þær verða komnar inn og Suðurnesjalína klárast þá verður búið að tengja Reykjanesvirkjun við Fljótsdalsstöð með öflugu kerfi. Það mun hafa gríðarleg áhrif.
Punktur þrjú væri einföldun á leyfisferlunum. Það var komið inn á blýhúðun áðan. Hv. þm. Bergþór Ólason og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson komu í sínum ræðum og andsvörum inn á það, sem er gríðarlega mikilvægt, og mjög slæmt hversu slæmum málum við Íslendingar náðum að koma í gegnum regluverkið og hafa þá virkilega skemmt fyrir núna á síðustu árum og þetta þarf að laga.
Síðan væri fjórði punkturinn það sem við erum kannski að fjalla um hér í þessu frumvarpi sem er að byggja upp gagnsætt viðskiptaumhverfi og viðskiptamarkað um þessi mál sem við þurfum virkilega að ná utan um hvernig eigi að vinna með. Eins og ég kom inn á fyrr í ræðunni þá snýst þetta frumvarp um að hér er mælt fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum og eftirlit til að stuðla að gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði. Einnig er kannski hinn helsti punkturinn sem þetta gengur út á að kveðið er á um bann við markaðssvikum og ólögmætum innherjaviðskiptum, skráningu markaðsaðila og tilkynningarskyld viðskipti. Þetta eru svona kannski þessir tveir helstu punktar sem frumvarpið snýr að.
Við höfum líka rætt hér fyrr í vetur annað sem snýr að þessum málum. Það er, og er mikilvægt, þess vegna er ég að ítreka það hér, að við virkjum á öruggum svæðum landsins út frá þjóðaröryggi þegar við lítum til náttúruvár. Það ætti ekki að koma hv. þingmönnum á óvart að mjög stór hluti af okkar virkjunum sem byggðar hafa verið á síðustu áratugum eru á svæðum þar sem ákveðin hætta á náttúruvá er til staðar. Þess vegna eru önnur svæði mikilvæg, eins og Skagafjörðurinn, Skatastaðavirkjanir og hugmyndir um þær. Kostir á þessum öruggari svæðum skipta miklu máli í samhengi hlutanna og í tengslum við öflugt flutningskerfi raforku. Auðvitað er flutningskerfi raforku örugglega eitt stærsta verkefnið sem við þurfum að fara í út frá mikilvægum þjóðhagslegum innviðum og verkefnum sem tengjast því. Þess vegna hefur sá sem hér stendur oft talað fyrir því í gegnum árin og óskað eftir skýrslu um annað sem snýr að þjóðaröryggi og innviðum samfélagsins og bendi ég hv. þingmönnum á skýrslu sem væntanlega kom þá eftir skýrslubeiðni um þjóðhagslega mikilvæga innviði og þjóðaröryggi 2020. Þar er komið m.a. inn á þetta og þetta snýr mikið að regluverkinu, hvernig við Íslendingar erum að vinna með þjóðaröryggismálin gagnvart okkar helstu innviðum. Þá umræðu mætti dýpka mjög og þess vegna tek ég undir þau sjónarmið, og hef komið inn á þau hér í gegnum tíðina, að löggjafinn þarf að flýta og styðja við framkvæmdir sem snúa að þjóðhagslega mikilvægum innviðum og styrkja löggjöf sína sem snýr að þeim málum.
Herra forseti. Ég held að ég nái ekki að fara í gegnum þá punkta sem voru handskrifaðir hér. Við sjáum til með framhaldið. Ég hef lokið máli mínu í bili.