156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[15:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ræðuna. Ég veit að hv. þingmaður er vel inni í raforkumálum, bæði hvað varðar framleiðslu og dreifikerfið. Það hefur skinið í gegn í mörgum ræðum hér við þessa umræðu að það virðist vera almenn sátt um það hér í salnum að okkur hafi mistekist heldur illa hvað það varðar að framleiða og viðhalda og auka framleiðslu á rafmagni til samræmis við það sem umfang í samfélaginu, vöxtur fyrirtækja og fjölgun heimila kallar eftir.

Mig langar í því samhengi að spyrja hv. þingmann, í ljósi þess hversu mikla áherslu hann hefur lagt á þennan málaflokk, hvernig þingmanninum þykir hafa tekist til annars vegar á síðustu misserum, og kannski samhangandi því um afstöðu hv. þingmanns til sjónarmiða hæstv. orkumálaráðherra um friðlýsingar, hraðfriðlýsingar kosta sem fari í verndarflokk annars vegar, og síðan langar mig að spyrja hv. þingmann — í ljósi þess að aftur, ég veit að hann fylgist vel með þeim málum sem þetta varðar sem koma til hv. atvinnuveganefndar þar sem þingmaðurinn situr, þetta er svona dálítill bútasaumur hvað lausnir varðar gagnvart þeim vanda sem við höfum komið okkur í — hvort þingmaðurinn teldi mögulega skynsamlegt að hnýta fleiri þessara mála saman til lausnar í stað þess að vera með hvert málið á fætur öðru sem bregst við afmörkuðum þætti þess vanda sem við höfum komið okkur í.