156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[15:38]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Klárlega gekk þetta ekki nógu vel á tímabili. Það gekk ágætlega í umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta kjörtímabili með ákveðin verkefni. Við kláruðum, hv. umhverfis- og samgöngunefnd, ramma þrjú á kjörtímabilinu 2021–2024. Ég vil þó taka fram eitt atriði þar, sem ég var mjög ósáttur við, að þegar ramminn fór í gegn á sínum tíma, og öll þessi umræða með rammaáætlun þrjú var um samfélagslegu áhrifin og efnahagsleg áhrif verkefnahópa, var sú vinna ekki kláruð á sínum tíma. Fyrst við erum að tala akkúrat um þetta þá held ég að það séu breyttar forsendur, eins og ég kom inn á, varðandi hvernig við afgreiðum mál sem snúa að orkumálum þjóðarinnar og rammanum. Ég er enginn sérstakur stuðningsmaður rammaáætlunarmódelsins.

Löggjafarvaldið þarf raunverulega að tengjast betur varðandi þjóðaröryggi, staðsetningar og annað, að fara að huga að því varðandi virkjunarframkvæmdir hvernig við virkjum, hvernig við byggjum við kerfið til að auka viðnámsþrótt og hugsa verulega um viðnámsþrótt kerfisins, áfallaþolið. Það er kannski það sem við erum að einhverju leyti að ræða með raforkuöryggi þjóðarinnar í dag í smærra málinu; hvernig við eigum að taka á málum í stærra samhengi hlutanna eða hvort við eigum að hafa það í smærri hlutum — a.m.k. með rammaáætlun er galið að vera með 40–50 virkjunarkosti undir í raforkuframleiðslu. Það er galið. Það er skárra þá að minnka þá nálgun.

Svo get ég haldið áfram í seinna andsvari varðandi aðrar spurningar sem hv. þingmaður kom fram með.