156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[15:46]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi blýhúðun og gullhúðun: Það verður náttúrlega eitt af forgangsverkefnum, held ég, allra þingnefnda í dag að fara í gegnum það sem snýr að þessum þætti. Mögulega hefur þingið ekki verið nægilega duglegt í vinnu tengdri því síðustu ár sem snýr að þessu þannig að það skiptir gríðarlegu máli að hv. atvinnuveganefnd og aðrar hv. nefndir þingsins, fastanefndir, takist á við gullhúðun eða blýhúðun, hvað sem við viljum kalla það, út frá því að við megum ekki veikja samkeppnisstöðu okkar Íslendinga og verðmætasköpun með gullhúðun eða blýhúðun. Það er gríðarlega mikilvægt.

Varðandi raforkukerfið hefur gætt þess að við Íslendingar höfum kannski verið svolítið sofandi vegna þess hvað við höfum alltaf átt gott aðgengi að grænni orku miðað við flestar aðrar þjóðir sem allar dauðöfunda okkur af því í dag. Það er mjög mikilvægt að við förum aðeins að herða á og fara mjög vel í gegnum það.

Það er alveg rétt að við höfum virkjað á þannig lagað hættulegum svæðum út frá náttúruvá eins og með jarðvarmavirkjanirnar. Við hugsum um Kröflueldana á sínum tíma, á sama tíma og verið var að byggja upp Kröfluvirkjun og síðan það sem við erum að upplifa núna á Reykjanesskaganum og hvað gæti komið. En auðvitað er þetta eitthvað sem þarf alltaf að meta með góðum hætti.

Varðandi flutningskerfið og fjármögnun þess þá er þetta fjármagnið. Það vantar ekki fjármagn í flutningskerfið og kerfisáætlun Landsnets er fjármögnuð. (Forseti hringir.) Þetta hefur meira snúið að regluverki og kæruferlum og öðru sem hefur hægt á því að það væri farið í framkvæmdir gagnvart flutningskerfinu.