raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með þingmanninum að það eru kannski ekki endilega peningarnir, það er kannski miklu frekar regluverkið. Við sjáum það loksins að Suðurnesjalína 2 er að fara í framkvæmdaferli. Ég held að það sé búið að vera 20 ára ferli að klára þá mikilvægu öryggisbót, ef svo má segja, við flutningskerfið okkar, en það horfir til betri vegar sem er mjög gott mál.
Síðan velti ég fyrir mér, vegna þess að auðvitað erum við að ræða raforkumál almennt, þó svo að um sé að ræða kannski sérhæfðari þátt hvað þetta frumvarp varðar, að þá höfum við séð eftir að orkuskortur raunverulega kemur upp hvernig við erum að líða fyrir það að hafa ekki byggt kerfið okkar nógu hratt og vel upp. Meðal annars sjáum við gríðarlega sóun í kerfinu. Getur þingmaðurinn ekki tekið undir það með mér að ef við myndum byrja þar, koma í veg fyrir að flutningskerfið okkar væri raunverulega að leka orkunni, ég leyfi mér að segja út í bláinn, að við getum forgangsraðað og reynt að koma í veg fyrir slíka sóun og orkusóun almennt þá til að setja enn meiri fjárfestingu í kerfið? Þannig getum við kannski hreyft okkur hraðar. Tekur ekki hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson undir með mér hvað það varðar?