156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[15:54]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F):

Virðulegi forseti. Það er náttúrlega ekki hægt að tala um raforkumarkaðinn án þess að tala um nýsköpun og betri nýtingu á raforku. Til að klára fyrri svörin fyrir hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson þá er mjög mikilvægt að styrkja Landsnet og koma í veg fyrir þær tafir sem verða á leiðinni þegar við erum að droppa niður frá 220 í 110.

Það sem ég ætlaði að ræða er að þetta er náttúrlega framboð og eftirspurn og við erum sammála um að það er lítið framboð en við erum ekkert að ræða aðra möguleika á að auka framboðið en að virkja meira. Hvað um að nýta betur það sem við höfum nú þegar? Erum við að gera ráð fyrir því að við séum að fullnýta jarðvarmavirkjanir á háhitasvæðum sem eru til staðar í dag? Erum við að fullnýta gagnaverin sem eru stærsti notandi glatvarma frá þeim og framleiða meira rafmagn? Við erum alltaf að tala um að virkja meira, hvar við eigum að virkja. Hvað tekur það langan tíma? Hvaða áhrif hefur það á umhverfið? Hvaða áhrif hefur það á samfélagið? Allt flott og gilt en ræðum aðeins betri nýtingu á því sem er nú þegar til staðar, og eins og var nefnt hér í dag, að hleypa litlum aðilum að, t.d. gagnaverum, glatvarma þaðan. Það geta verið litlir aðilar sem geta lagt til rafmagn og mikilvægi fyrir skilvirkni og fyrir þjóðaröryggi, að það sé meira, að við séum ekki háð bara þessum stóru virkjunum sem eru á háhitasvæðum, eldvirkum svæðum. Við erum með Reykjanesvirkjun, Svartsengi, Nesjavelli og Hellisheiðarvirkjun á sama belti og svo fer það Hengilssvæðið alla leið til Kröflu og við erum að reyna að auka framleiðslu á rafmagni á sama stað. Við erum meira og meira að reyna að virkja á háhitasvæðinu.

Ég vildi bara koma því fram að nýsköpun er mjög mikilvæg og að það vanti sárlega í umræðuna að nýta betur það sem við erum nú þegar með og allir kostir eiga að vera nefndir. Notum bara alla kosti til orkunýtingar, alla orku sem við getum nýtt til að framleiða eitthvert rafmagn, einhverja orku, ég tek undir það, notum allt sem hægt er að nýta og byrjum á því að nýta það sem við höfum nú þegar í dag.