raforkulög.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál þar sem við fjöllum um viðskipti og reglur á markaði með raforku. En hver er ástæðan fyrir því að við erum að ræða þetta fyrst núna, næstum 20 árum eftir að þessi raforkumarkaður var þannig lagað settur af stað? Ætli það séu ekki bara þær hröðu breytingar sem hafa orðið á þessum markaði eins og aukin eftirspurn? Af því að þegar reglurnar voru settar var nú kannski framboðið töluvert meira en eftirspurnin og kannski ekkert mikið sem kallaði á að klára þetta en ég held að það hefði nú alveg farið betur og er það, held ég, engum ákveðnum að kenna, það bara er ekki búið að klára þetta. Hefði farið betur ef fyrr hefði verið? Jú, þetta hefur verið fyrr á þingmálaskrá og annað slíkt en það er bara flott að þetta sé komið núna.
Þegar maður fer um landið og hittir fólk á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins og með misjafna búsetu og annað þá er þetta það sem fólk hefur áhyggjur af í dag, hvernig raforkuverð þróast, orkuöryggið, aðgengi að orkunni og svo verðið og verðmyndunin. Þetta er bara einn angi af mörgum sem hafa áhrif þar á, að það sé spilað heiðarlega á þeim markaði. Þessi lög eiga að tryggja og vernda þennan almenna notanda og litlu og meðalstóru fyrirtækin, sem er hvað mikilvægast, sérstaklega í landi auðlindanna, þar sem við höfum þessa miklu grænu orku sem er bara orðin uppseld, því miður, við eigum ekki meira af henni, við höfum bara ekki beislað hana enn þá, þá er þetta gríðarlega mikilvægt en þetta er, eins og ég segi, bara einn liður í þessu mengi.
Þá skiptir líka miklu máli hvernig við notum þá löggjöf sem við höfum sett og við getum gert, held ég, mikið betur í að jafna flutningskostnaðinn á milli svæða. Það er alveg ótrúlegt að nánast öll orkan sé framleidd úti um landið en núllpunkturinn á flutningskerfinu sé hér á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum að fjölga þessum núllpunktum og nýta þær heimildir sem við höfum til þess þannig að Landsnet sé með fleiri núllpunkta, bara við virkjanirnar eða spennivirkin eða hvernig sem við gerum það, til að jafna þann leik og svo þetta milli þéttbýlis og dreifbýlis. Við höfum oft hækkað dreifiveitugjald og sett styrk í gegnum fjárlögin á móti og annað slíkt til að jafna leikinn þar á milli. Það hefur lækkað orkuverðið í mjög skamman tíma og svo bara hækkar dreifikostnaðurinn mjög hratt aftur. Þetta á sér allt sitthverjar skýringarnar og sitthverja löggjöfina. Þetta er bara flókinn markaður og flókið regluverk sem við þurfum að sameinast um að laga og hér erum við að fjalla í dag um mál sem á að taka á einum þætti í þessu, viðskiptahlutanum af þessu, og fylgir þá öðru máli sem hv. atvinnuveganefnd er með nú þegar sem er forgangsorkan.
Við vorum minnt á það síðast í dag að náttúran er ekkert að spyrja okkur leyfis, hún fer bara sína leið. Það var stór atburður á Reykjanesskaga í dag en hann fór sem betur fer, enn þá alla vega, þannig að það ógnaði ekki orkuinnviðunum okkar. En það hefði ekkert þurft að fara neitt mikið öðruvísi þar og þessi stóri atburður hefði bara getað þróast þannig að við hefðum ekki ráðið við hraunflæðið frá honum og það hefði getað slegið út 6% af allri orkuvinnslu á Íslandi. Það hefði bara getað gerst í morgun. Það var raunveruleg hætta í morgun. Ég verð að segja að nú er áskorun í þessu en þær geta stækkað mjög hratt þannig að við þurfum að takast á við það. Sameinumst um það hér í þingheimi að tryggja allt sem við getum, aukið orkuframboð á sem hagkvæmastan hátt en líka sem fljótastan hátt þannig að við séum þá betur undirbúin og tryggjum kjör heimilanna og fyrirtækjanna í landinu með aðgengi að endurnýjanlegri, hreinni en hagkvæmri orku. Það er grunnurinn að lífskjörum í þessu landi. Það er líka grunnurinn að aukinni verðmætasköpun þannig að við getum farið að greiða niður skuldir, hafa sterkari fjárfestingargetu í nýsköpun og þróun og í auðlindanýtingunni okkar til að vera þá tilbúin fyrir þau áföll sem hér koma, eins og var bara næstum búið að gerast síðast í morgun. Þeim atburði er svo sem ekki lokið, við vitum ekki hvert það þróast.
Við erum í landi auðlindanýtingar og auðvitað verður alltaf umdeilt hvernig þær auðlindir eru nýttar og hvernig þeim auðlindum og þeim verðmætum og takmörkuðu gæðum sem þeim fylgja er skipt en ég held að það sé samt almenn sátt um að heimilin og hinn almenni notandi og lítil og meðalstór fyrirtæki eigi að vera þar í forgangi. Þar skiptir mestu máli að tryggja þá að þau fái sem hagkvæmasta verðið og sem tryggustu afhendinguna en í þessu ljósi þurfum við líka að hugsa um að dreifa áhættunni þannig að við séum með fjölbreytta orkukosti á fjölbreyttum svæðum.
Í því samhengi fagna ég því máli sem kemur hér næst á dagskrá, að við séum að vinna að því að einfalda leyfisveitingaferlið og annað þannig að það við séum að samræma það og einfalda. En við verðum líka að hugsa þetta í miklu stærra samhengi eins og í kringum rammaáætlun, hvort við ætlum að hafa rammaáætlun yfirhöfuð, hvort við ætlum að fara að friðlýsa og taka frá land og hafa áhrif fram í framtíðina, eitthvað sem við getum kannski ekki metið sjálf þótt ég sé ekki að segja að við eigum bara virkja allt saman, aldrei. Ég er að segja: Treystum bara þeim ferlum sem við höfum hvort sem er og horfum á stöðuna í heimsmálunum, stöðuna í orkumálunum hér heima og þær áskoranir sem við höfum fengið síðastliðinn áratug og það sem er fyrir framan okkur og drífum okkur í að virkja af því að það eykur verðmætasköpunina. Það dregur líka úr þessu hækkandi verði.
Verðið er orðið þannig í dag að til þess að verja sig fyrir því er það orðið hagkvæmara að mörgu leyti að kaupa sér dísilrafstöð og dísilolíu og keyra rafmagnið þannig. Það eru einu varnirnar sem fólk getur farið í í dag ef það vill tryggja rekstur á sínu fyrirtæki, afhendingaröryggi á orku til hvort sem er heimilis eða fyrirtækis síns. Þá veit ég um fyrirtæki sem hafa reiknað það út að þau eru alveg komin á þann skurðpunkt að það sé hagkvæmara að kaupa dísilrafstöð og olíu á hana heldur en að semja um kaup á þeirri litlu raforku sem til er. Þetta getum við ekki búið við. Svo erum við með heilan landshluta eins og Vestfirði sem þurftu að verja sig sjálfir. Landshlutinn þurfti að verja orkuöryggi af því að það var alltaf að slá út og var bara ein lína. Til að verja sína atvinnustarfsemi og húshitun og fleira þá þurfti að byggja dísilrafstöð sem er yfir 10 MW. Hvað þarf að gera við vatnsaflsvirkjun sem er yfir 10 MW? Hún þarf að fara í rammaáætlun og mat á umhverfisáhrifum áætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og fá byggingarleyfi og ég veit ekki hvað. En það þyrfti bara að setja þessa dísilrafstöð inn á eitt skipulag og eitt framkvæmdaleyfi og hún er risin, engin rammaáætlun og ekkert vesen. Þarna liggja orkukostir alveg í dauðafæri rétt hjá, Vatnsfjarðarvirkjun og annað slíkt.
Ég tel vera bara þannig neyðarástand í orkumálum á landinu, líka í efnahagsmálum í heiminum, þjóðaröryggismálum og í orkuverðsmálum, að við eigum að setja virkjanir eins og Vatnsfjarðarvirkjun í sérlöggjöf og koma henni af stað sem allra fyrst eða setja hana í flýtimeðferð í rammaáætlun og nýta það eða hraða því alla vega að það sé hægt að bregðast við, af því að við vitum að sama hversu mikla flýtileið við förum í gegnum kerfið með þetta þá tekur alltaf fimm ár að gera svona framkvæmd, þannig að allt sem við erum að ræða í dag kemur ekki fyrr en eftir fimm ár í fyrsta lagi. Hvað verður búið að gerast í heiminum á þeim tíma? Hvað verður búið að gerast í eftirspurn eftir orku á þeim tíma? Flutningskerfið verður fimm árum eldra og hvaða áhrif hefur það? Hvað hafa náttúruhamfarir á Íslandi gert okkur þá? Við vitum það ekki í dag. Við erum bara að verða of sein að bregðast við.
Í svona umhverfi, með öllu þessu álagi og þessari stöðu, þá er þetta frumvarp sem við ræðum hér í dag gríðarlega mikilvægt, að við náum að hafa gagnsæi og skýrar leikreglur af því að að sjálfsögðu harðnar samkeppnin, harðnar baráttan um rafmagnið eftir því sem eftirspurnin er meiri en framboðið eykst ekki samkvæmt því og fólk fer að verja sinn rekstur, nema við bara missum þetta í að það bara fari allir að kaupa magninnkaup af dísilrafstöðvum og nota dísil inn á þetta, það er ekki gott að segja. Ábyrgð okkar hér er mikil. Við þurfum að horfa svolítið fram á veginn. Við getum ekki verið að horfa í baksýnisspegilinn í þessu heldur þurfum við að taka höndum saman og verja okkar hagsmuni. Við skulum tryggja fólki næga orku á sem hagkvæmastan hátt. Það gerum við með grænu og umhverfisvænu orkunni okkar, orkunni sem við erum með, orkunni sem við þurfum ekki að flytja inn til landsins og nota gjaldeyri í.
Ég ætla hér í lok máls míns að fagna þessu máli, fagna því máli sem hæstv. ráðherra flytur hér á eftir þessu og hvetja hæstv. ráðherra til góðra verka og hv. þingheim líka til að fylgja þessum málum eftir og finna lausnir í þeim fjölda mála sem ég er búinn að fara hér yfir, fara svolítið út og suður. Almenningur í þessu landi, þegar maður fer og hittir fólk, maður fer hringinn í kringum landið, hefur gríðarlegar áhyggjur af þessu. Þeir geta ekki þróað sína atvinnustarfsemi lengur af því að þeir fá ekki orkuna til þess. Þeir sem fá orkuna hafa miklar áhyggjur af auknum kostnaði. Heimilin hafa það líka og svo er þetta jafnræði á milli borgaranna, að þeir sem hafa virkjunina og flutningskerfið í bakgarðinum eru að borga svo miklu hærri flutningskostnað af því að þeir búa í dreifbýli en ekki í þéttbýli en þurfa að þola línurnar. Það er kannski eitt mál sem við þurfum að hraða líka, það er þá rétt afgjald til sveitarfélaganna og landeigendanna varðandi fasteignagjöld af orkumannvirkjum. Það mál er búið að sæta miklum undirbúningi og hef ég heyrt á hæstv. ráðherra að það sé von á því strax í haust og ég vona að það standist. Ég hlakka til að aðstoða hæstv. ráðherra við að klára það í gegnum þingið, samfélaginu til heilla.