raforkulög.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka kærlega fyrir þessa umræðu og framlagningu á þessu mikilvæga máli. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, um raforkuviðskipti í raun. Það hefur verið farið um víðan völl hérna í dag. Ég átti svo sem von á því í umræðunni að við myndum að sjálfsögðu ræða framboð á raforku. Það kom mér ekki á óvart að rammaáætlun skyldi vera nefnd hérna og það er eðlilegt. Við höfum áhyggjur af því að það sé ekki nægt framboð raforku á Íslandi eins og staðan er í dag. Það er ekki af því að hún sé ekki fyrir hendi. Í rauninni er sú staða uppi að við höfum kannski ekki náð að virkja hana sem skyldi.
Mig langar að koma með einn vinkil inn í þessa umræðu um raforkuviðskipti. Ég held að þetta frumvarp sé mjög mikilvægt innlegg í að hér verði til góður raforkumarkaður og þroskaður raforkumarkaður er mjög mikilvægur fyrir okkur. Ég held að þroskaður markaður muni stuðla að mun skilvirkari nýtingu á raforku heldur en er í dag og bættri nýtingu. Ég held að hann muni líka kannski stuðla að því að sú orka sem við höfum sett í kerfið, hvort sem við erum búin að hlaða rafbíl eða erum með hana á stórum rafhlöðum eða einhverju álíka, verði meira notuð en áður. Ég geri ráð fyrir því t.d. að það gæti skipt okkur máli ef við ætlum ekki að nota rafmagnsbílinn að þá ákveðum við bara að selja orkuna af honum inn á kerfið. Ég held að það stuðli að því að við nýtum orkuna betur.
Af því að ég hef haft nokkuð með Grundartanga að gera þá langar mig að nefna dæmi um hvernig við gætum mögulega nýtt orkuna með skilvirkari hætti en við gerum í dag. Þannig er mál með vexti að hjá mörgum af fyrirtækjunum sem eru í málmbræðslu — mig langar að taka sérstaklega núna kannski dæmi af Elkem, sem er kísilframleiðsla — er notuð mikil orka en í framleiðsluferlinu er líka notað töluvert af kolefni og við það verður til mikill varmi. Nú er staðan þannig að í dag erum við ekki að nýta þennan varma og hann puðrast út í loftið. Ég vil meina að ef við settum þarna upp virkjun væri það sennilega einhver hagkvæmasta virkjun per megavatt sem hægt væri að fá, en það hefur í rauninni vantað hvata til þess að fanga þetta rafmagn. Ég er sannfærður um að virkur raforkumarkaður þar sem þú ert mögulega í álnum með að gera eitthvað við raforkuna sem þú framleiðir — og ég ætla að leyfa mér að segja að það sé hægt að ná allt upp undir 30 MW út úr varmaorkunni sem verður til á tanganum — myndi stuðla að því að slík orka væri nýtt. Ef við förum yfir t.d. bara lítið atriði eins og gagnaver þá eru þau að framleiða líka mikinn varma, þannig að við getum í rauninni bætt orkunotkunina og ég held að skilvirkur raforkumarkaður verði gott innlegg í það og mikilvægt.
Ég hjó eftir því hérna í regluverkinu að það er mikið lagt upp úr því að við pössum upp á að það sé gætt vel að reglum varðandi upplýsingar, innherjaupplýsingar og annað slíkt, og auðvitað skiptir það máli því að maður sér alveg fyrir sér að fyrir þá aðila sem eru bæði í heildsölu og smásölu þurfi auðvitað að búa þannig um hnútana að það sé gætt að heiðursmannasamkomulagi í þeim efnum og allir sitji við sama borð.
Annars vil ég bara þakka kærlega fyrir þessa umræðu og ég vil bara hvetja ráðherra til að halda áfram sinni ágætu vinnu. Ég tel að þetta sé gott innlegg í framhaldið.
(Forseti (HildS): Forseti biður um ögn meira hljóð í hliðarsal.)