raforkulög.
Virðulegur forseti. Við ræðum hérna enn eitt raforkumálið sem kemur inn til þingsins núna, fjallar um raforkuviðskipti og hér er enn eitt málið sem hæstv. ríkisstjórn hefur hlotið í arf frá fyrri ráðherrum. Það var mikil undirbúningsvinna búin að vera í gangi til að reyna að bregðast við því alvarlega ástandi sem skapast hefur í okkar orkumálum. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók við orkumálum og orkumálaráðuneytinu og umhverfisráðuneytinu saman 2021 þá var hægt að hefjast handa og það hefur sannarlega verið að skila sér og því ber að fagna. Þetta fjallar um ákveðið afmarkað málefni en það er ekki óeðlilegt þegar svona stór mál eru undir að þingmenn fari svolítið víðar í umræðunni og við eigum eftir að gera það auðvitað þegar þessi mál koma til umræðu vegna þess að þetta er svo ánægjuleg þróun. Það er hægt að taka undir þessa ánægjulegu þróun sem er að verða í þinginu á skilningi þess að við verðum að standa okkur betur. Þingið hefur kostað samfélagið allt of mikið í þessum handarbakavinnubrögðum sem hafa verið ástunduð hér undanfarin ár, mörg ár.
Að því leyti er hægt að fagna mjög stefnubreytingu Samfylkingarinnar í þessum málum og það er ágætt að minna hæstv. ráðherra á það að kynna sér sögu síns flokks í þessu. Þá veit maður ekki hvort maður á að hlæja til að gleðjast eða gráta vegna þess tjóns sem þingið hefur valdið samfélaginu í þessum vinnubrögðum. Ég veit að hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem er sessunautur minn í þinginu í dag eftir margra ára fjarveru — sendi mér reyndar skeyti stuttu eftir að ég kom aftur á þing og sagði að við yrðum örugglega sessunautar eins og á fyrra þingi, það reyndist rétt þó að það væri svona mánuði áður en ég mætti — kannast við þetta sem ég er að tala um, hvernig staðan var 2009–2013 þegar hann var einmitt þingmaður Samfylkingarinnar í vinstri stjórn. Við vorum einmitt oftar en mörgum sinnum í útvarpsþáttum eða á vettvangi fjölmiðlanna að ræða þessi mál og ég skal segja það af virðingu við hv. þm. Sigmund Erni Rúnarsson að hann var nú yfirleitt ekki á sömu skoðun og þeir sem hann var að starfa með og þar beit kannski hann og fleiri Samfylkingarþingmenn eitthvað úr í því að þurfa að vera í samstarfi með Vinstri grænum.
En þessi stefnubreyting er mjög ánægjuleg og hún er gríðarlega mikilvæg. Það sést aðeins í þingmálum frá hæstv. ráðherra að hann er aðeins að reyna að skrifa þetta á Sjálfstæðisflokkinn og það að hann hafi verið í meiri hluta á undanförnum árum og að við höfum ekki náð meiri árangri. En ég bið hann að endurskoða svolítið þau skrif sín vegna þess að það er þó þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur án nokkurs vafa verið sá flokkur sem hefur staðið í fararbroddi í gegnum árin, og áratugina reyndar, þegar kemur að nýtingu orku til aukinnar velferðar í okkar samfélagi og hefur leitt þau mál í gegnum tíðina. En þetta hefur verið einstaklega erfitt á þessum tímum sem eru frá, við getum alveg sagt efnahagshruninu og frá því að við innleiddum þessa rammaáætlun.
Við erum að ræða í dag einmitt inni í atvinnuveganefnd annað mál frá hæstv. ráðherra sem snýr að forgangsorku fyrir ákveðna aðila í samfélaginu, almenning. Það er að gefnu tilefni. Það er einmitt vegna þess hve illa hefur tekist til. Við værum ekkert að ræða þetta ef við hefðum staðið okkur í því að vinna okkar vinnu. Núverandi staða kemur í sjálfu sér engum á óvart sem hefur fylgst með þessum málum lengi. Við þessu hefur verið varað ítrekað og alveg með ólíkindum hvað þingið stóð sig illa, eða margir flokkar þar og þingmenn, í því að hlusta á sérfræðingana í þessum málum og alveg magnað að Samfylkingin, sem þar til fyrir einu og hálfu ári síðan eða svo var með forstjóra í orkufyrirtækinu sínu, Orkuveitunni eða Orku náttúrunnar, sem í dag er ráðgjafi hjá Landvernd — forstjórinn til margra ára kom ítrekað fram í fjölmiðla og fullyrti við þjóðina, og þar með þingheim, að það þyrfti sko ekki að virkja meira á Íslandi. Ég tek þetta hér upp til þess að við áttum okkur á því hvað það er sem olli þessu og hversu mikilvæg þessi stefnubreyting er sem er að verða núna hjá ákveðnum flokkum, og flokki.
Við getum varpað þessu svo sem yfir á annað og ég hvet menn til að þroskast aðeins betur á því sviði í samræmi við þann þroska sem hefur orðið hér í viðhorfum gagnvart orkumálum. Við erum nefnilega að glíma við aðra aðför að atvinnulífinu og verðmætasköpun í landinu þegar verið er að fara mjög óvarlega fram með breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu, aukna skattlagningu á viðkvæma grein sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt þjóðarbú ef illa tekst til og virðist eiginlega blasa við við þær aðstæður sem nú eru uppi þar sem við erum með aflabrest í mjög mikilvægum tegundum ár eftir ár. Við höfum þó fyrirtæki sem standa þetta af sér en á sama tíma ætlar þessi ríkisstjórn að hjóla í atvinnulífið, ferðaþjónustu þar sem ferðamönnum er að fækka, þar sem vá er mögulega fyrir dyrum vegna breytinga á alþjóðavettvangi og þessi staða er í sjávarútveginum, og þá ætla menn að bregðast við með því að hækka skatta. Þetta eru þó þær greinar sem dregið hafa bátinn í fjárfestingum og verðmætasköpun í íslensku samfélagi síðustu árin, og reyndar miklu lengur.
Ég vonast til að menn setji þessi nýju orkugleraugu upp og horfi svolítið með þeim og láti smíða ný gleraugu fyrir sig þegar kemur að öðrum atvinnugreinum og verðmætasköpun þeirra en standi ekki upp og básúni það algerlega innihaldslaust úr þessum ræðustól að þetta fólk geti bara borgað meira. Svo ætla þeir að leggja einhverja 7–10 milljarða á þetta aukalega og það á bara að bjarga öllum útgjöldum. Við fengum nú 50 milljarða núna í endurmati á tekjum fyrir næsta ár þannig að 7–10 milljarðar vigta lítið. Það er líka verið að setja á bifreiðagjöld og slíkt.
Aðeins aftur að orkunni. Þá er ástæða til að velta fyrir sér aðeins kostnaði samfélagsins af þessari stefnubreytingu. Aftur vil ég varpa því yfir á sjávarútveginn eða ferðaþjónustuna, þessar atvinnugreinar sem á að fara að skattleggja í drep eða skattleggja miklu meira með tiltölulega óundirbúnum málum og óvissan er mikil hver kostnaðurinn er. Ég hef stundum sagt að ég held að það væri rétt að Alþingi, og þessi hugmynd kom svona til þegar menn voru að velta sér upp úr því fram og til baka að við þyrftum að setja á rannsóknarnefnd Alþingis til að láta skoða það hvort við hefðum getað fengið milljarði meira eða minna fyrir sölu á bankahlutabréfum. Úr þessu var gert stórmál á þingi og úti í samfélaginu í pólitískum tilgangi. Ég held að við ættum að setja saman óháða rannsóknarnefnd sem færi alveg yfir það hver kostnaður samfélagsins er af þessu sinnuleysi stjórnmálanna þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki. Það nemur tugmilljörðum ef ekki meiru á hverju einasta ári.
Í fjármálaáætlun núna er verið að ræða að það þurfi að byggja upp borð fyrir báru vegna þeirrar stöðu sem er í heiminum og vegna þeirrar náttúruógnar sem er ekki ný í okkar samfélagi, hefur alltaf blasað við. Menn verði að fara að huga að þjóðaröryggi og byggja upp slíkar varnir að við getum staðist áföll sem að okkur kunna að koma. Ég tek hjartanlega undir þau sjónarmið. Það er gríðarlega mikilvægt að við hugum einmitt að þjóðaröryggi í þessum málum. Við erum þá minnug þess að orka og orkumál eru hjá hverri einustu þjóð sett í fyrsta sæti þegar kemur að þjóðaröryggi. Ég held að við þær aðstæður sem eru uppi núna, þá samstöðu sem er í þinginu núna um það hversu gallað regluverk er um að ræða, að hluta til vegna ákveðinna gildra sem voru settar í upphafi af þáverandi umhverfisráðherra þegar lögin voru sett, sem okkur sem í góðri trú samþykktum lögin sást svolítið — við sáum þetta ekki alveg fyrir, líka í ljósi þess að við höfum þróað vinnubrögð alveg frá þeim tíma meðal faghópa og verkefnastjórnar um að fara allt of djúpt í vinnu við val eða mat á virkjunarkostum, og það má lengi telja þessar girðingar og svo setja það í samhengi við þetta þjóðaröryggi og stöðuna og hvernig við ætlum þá að reyna að brjótast virkilega út úr þessu núna.
Ég held að við séum öll sammála um það, eða langflest hérna í þessum sal, að það sé komið að þeim tímamótum að við erum farin að horfast í augu við raunveruleikann á svolítið breiðum vettvangi, pólitískt. Það eru viðbrögðin sem eru að koma, það eru þessi mál sem voru í vinnslu í ráðuneytinu, ráðherrann er að fylgja því vel eftir og ég fagna því en þetta er ákveðinn bútasaumur eins og einhver kom inn á áðan. Það er verið að grípa svona hálmstráin hér og þar og við þurfum að redda þessu og redda hinu og slíkt. Ég held að við ættum í raun og veru að stíga bara enn stærra og róttækara skref. Þessi bútasaumur og slíkt er allt of dýr. Á meðan erum við stöðugt að brenna tíma sem við höfum ekki efni á að missa. Þetta er ekki hilluvara sem er tekin úr hillunni og kveikt á daginn eftir.
Út frá þjóðaröryggi þarf að auka raforkuframleiðslu í landinu. Það þarf að dreifa raforkuframleiðslu um landið og það þarf að dreifa þeim virkjunarkostum sem ráðist verður í núna á næstu fáu árum á milli orkufyrirtækjanna þannig að við fáum almennilegan kraft af stað til að komast upp úr þessu hjólfari. Ég held að það væri ástæða til að taka þessa heildarlöggjöf alla sem að þessu snýr til grundvallarendurskoðunar. Við gætum gert það, eins og tónninn er í þinginu í dag, í þverpólitískri sátt og reynt að ná fram vanköntum sem eru í þessu og búa til eitthvert ferli sem er skilvirkt og skilar okkur árangri en á meðan myndum við setja fram neyðaráætlun þar sem við tökum einhverja ákveðna virkjunarkosti upp að ákveðnu aflmarki, þeir geta verið fjórir, þeir geta verið fimm, og segjum: Þetta er bara það sem við ætlum að gera á næstu tíu árum. Við ætlum að dreifa þessu á milli orkufyrirtækjanna og við ætlum að dreifa þessu um landið. Samhliða þarf auðvitað að grípa til lagasetningar til að við getum styrkt dreifikerfi raforku.
Í Evrópusambandinu, sem sumir flokkar hér eru hrifnir af og vilja nú fara þangað og sjá allt grænna þeim megin við, eru svona mál afgreidd bara með miklum hraði, sem snúa að grænni orku í dag. Öll lönd eru að horfa á þetta sem lausnir sem þau keyra í gegn og láta ekki regluverkið þvælast fyrir sér en með því að fara í þennan bútasaum og ætla að stolla þessu inn í næsta vetur og svoleiðis þá erum við enn þá að auka á erfiðleikana.
Niðurstaða mín er sú, virðulegur forseti, að í stað þessa bútasaums þá tel ég að við ættum að stíga enn stærra skref, fara í alvöruendurskoðun á öllu regluverki í kringum þetta. Við ættum að setja saman þverpólitíska neyðaráætlun um uppbyggingu raforkukerfisins, bæði í framleiðslu og flutningskerfum. Og þannig munum við geta svarað inn í hina nánu framtíð hvernig við ætlum að bregðast við loftslagsbreytingum, hvernig við ætlum að draga úr kolefnisspori, hvernig við ætlum að rafvæða, hvernig við ætlum að gefa fyrirtækjunum súrefni til að geta farið í fjárfestingar á grundvelli þess og sótt fram (Forseti hringir.) og skapað meiri verðmæti og fleiri verðmæt störf í okkar landi. (Forseti hringir.) Og þetta ætti að vera nátengt byggðastefnu, virðulegur forseti, þar sem stjórnvöld hefðu það að leiðarljósi að dreifa þessum tækifærum sem víðast um landið.