raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir hans innlegg í umræðuna sem var á margan hátt eftirtektarvert og þarft. Ég tek undir þau orð sem hann flutti hér í pontu Alþingis, að þetta snýst um orkuöryggi sem er gríðarlega mikilvægt og hefur sennilega aldrei verið mikilvægara en á okkar tímum þegar vá stendur fyrir dyrum víða að úr heimi hér, og sömuleiðis byggðafestu svo við getum haldið áfram með atvinnuuppbyggingu hringinn í kringum landið sem er gríðarlegt framfaramál. Við vitum það báðir tveir að vinna skapar velferð í þessu landi. Það hangir saman á sömu spýtu.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, hann kom inn á hér þann árafjölda sem ekkert var gert í orkuuppbyggingu í landinu, af hverju stafaði það? Er það vegna þess að það var ósamstaða milli þeirra flokka sem störfuðu á Alþingi þá? Er það vegna þess að kannski einn flokkur öðrum fremur stóð í vegi fyrir því að farið væri í orkuuppbyggingu í landinu? Það er áhugavert að fá einmitt svar frá hv. þingmanni um þetta atriði svo það liggi fyrir.