156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[16:33]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvað veldur? Það er nefnilega ágæt spurning. Ég held að við getum sagt að það sem valdi því hvernig tekist hefur til eftir að vinstri stjórnin fór frá völdum 2013, fyrir þá vel góðum tíu árum síðan, hafi verið ákveðinn pólitískur óróleiki í okkar samfélagi. Ríkisstjórnir hafa ekki lifað af kjörtímabilin. Það hefur auðvitað haft í för með sér að menn hafa ekki náð að keyra í gegn ákveðnar stefnubreytingar. Já, 2013–2016 var ég formaður atvinnuveganefndar og lagði til mjög róttækar breytingar á rammaáætlun sem kom inn til þingsins þá og að ákveðinn fjöldi virkjunarkosta yrði færður. Það var mikil andstaða við það í þinginu. Ég hlaut mikil ámæli fyrir það, til að mynda frá þáverandi hv. þingmönnum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og fleiri flokka sem voru með þeim í liði í því. Við vorum í samstarfi við Framsóknarflokkinn og það skorti þá kjark til að klára þetta alla leið. Þetta er bara eins og hægt er að skoða í þingsögunni og liggur allt saman fyrir þannig að það er já, ósamstaða, ákveðnir flokkar á móti, þannig að sá samhljómur sem við erum með í dag er nýlunda, hann er alveg nýr. Ég vitnaði til þess að sá samhljómur hafi verið ágætur milli mín og hv. þingmanns á sínum tíma, virðulegur forseti, 2009–2013, en hann var bara einn í fjölmennum hópi þingmanna þar, sem voru á þessari skoðun.

Ég er algerlega sammála, virðulegur forseti, að vinna jafngildir nefnilega velferð og tækifærin eru til að vinna úr þeim og byggðafestan og byggðasjónarmiðin koma svo ríkt inn í þessi mál. Í dag erum við með önnur tækifæri sem tengjast fiskeldi. Við skulum svolítið spegla okkur í fiskeldinu og tækifærunum sem liggja þar. (Forseti hringir.) Við getum sennilega tvöfaldað útflutningsverðmæti sjávarútvegsafurða á næstu tíu árum með því að standa sómasamlega að málum þar (Forseti hringir.) en við erum enn að draga lappirnar.