raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir þetta innlegg og vil að þessu sinni inna hann eftir samkeppni á sviði orkumála. Samkeppni hefur ekki skilað lægra vöruverði heldur þvert á móti hefur rafmagnsreikningur fólks og fyrirtækja hækkað verulega. Þetta er gríðarlega mikið áhyggjuefni fólks og fyrirtækja víða um land, eðlilega. Ég get nefnt bara sem dæmi grænmetisbændur sem tala ákaft við okkur þingheim um að þar þurfi að vinda ofan af vandanum sem blasir við. Núverandi ríkisstjórn hefur hugað að því að koma til móts við grænmetisbændur að þessu leyti sem er gríðarlega mikilvægt og brýnt vegna þess að við viljum framleiða eins mikið af grænmeti hér innan lands og við getum og eigum að gera. En þetta er áhyggjuefni. Við getum farið í LED-lýsingu í þessum gróðurhúsum okkar á komandi mánuðum og munum vonandi styrkja það af alhug. Ég vona að þingheimur sé sammála um þá leið vegna þess að hátt raforkuverð á ekki að vera sjálfgefið í þessu landi þar sem við höfum nægt framboð af vatnsafli og jarðvarma sem við getum beislað til góðra hluta. Engu að síður er þetta staðan, hv. þm. Jón Gunnarsson, að fólk og fyrirtæki eru að sligast undan háu raforkuverði. Hvað er til ráða?