156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[16:38]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvað er til ráða? Stórt er spurt. Það sem er náttúrlega fyrst og fremst til ráða er það sem við erum að horfa á gerast á hinu háa Alþingi Íslendinga. Það er viðhorfsbreyting þingflokka og þá meiri kjarkur og samstaða um að stíga róttæk skref. Það er auðvitað grundvöllurinn. Það hefur blasað við öllum hver þróunin yrði. Við þessu hefur ítrekað verið varað, að þetta yrði endirinn. Samkeppnin — verðið hækkar bara af því að það er miklu meiri eftirspurn en framboð og við höfum ekki staðið okkur á framboðshliðinni. Ég vitna aftur í forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur sem sat í umboði Samfylkingarinnar í öll þessi ár þar sem sett var á framkvæmdastopp af stjórn Orkuveitunnar í nokkuð mörg ár. Hann kom í fjölmiðla og sagði: Það þarf ekkert að virkja meira á Íslandi, það er til nóg orka. Það eru ekki nema innan við tvö ár síðan. Það er þessi viðhorfsbreyting sem þarf að koma til og er að verða og henni er ég að fagna.

Garðyrkjan er auðvitað einn hluti af þessu sem líður fyrir þetta. Hún er viðkvæm fyrir orkuverði. Það eru þó tæknibreytingar sem hv. þingmaður vísaði til, virðulegur forseti, þegar hann talaði um breytingar á lýsingu og að fara í lýsingu sem nýtir rafmagnið miklu betur eða notar miklu minna rafmagn en skilar sama árangri. Það hefur alltaf verið samstaða um það í þinginu að reyna að styðja við garðyrkjuna í landinu. Ég held að það sé alveg þverpólitískt og árangurinn hefur svo sem ekkert látið á sér standa vegna þess að garðyrkja á Íslandi hefur sem betur fer eflst gríðarlega mikið. Við erum að framleiða mjög góða vöru og þótt hún sé aðeins dýrari úti í búð kjósa landsmenn að kaupa hana frekar. (Forseti hringir.) Það er einmitt vegna gæða og hreinleika sem fólk setur jú í forgang þegar kemur að því.