raforkulög.
Frú forseti. Já, ég á einhverjar sekúndur eftir. Það sem ég var að segja í stuttu máli í minni ræðu var að ég teldi að á bak við orkuöflun á Íslandi, orkusölu og orkuflutning liggi þjóðarsamningur, þ.e. að við höfum ákveðið sem þjóð fyrir 70 árum síðan eða 60 að við myndum raforkuvæða allt landið með ákveðnum hætti, þ.e. reisa stórvirkjanir og selja til stórnotenda, sem í upphafi var einungis einn en það hefur fjölgað í þeim hópi, og með þessu móti, á löngum tíma, 40–50 árum, myndum við borga kostnaðinn við þá virkjun og kostnaðinn líka, frú forseti, sem er mikilvægt, við flutning á raforkunni hringinn í kringum landið og til afskekktustu sveita landsins. Þetta tókst, frú forseti, en í þessum samningi sem ég nefni er einnig falið þetta loforð um það að við myndum njóta ávaxtanna sem þjóð, íbúar landsins myndu njóta ávaxtanna með lægra raforkuverði. (Forseti hringir.)
Ég ætla að láta þessu lokið.