raforkulög.
Virðulegur forseti. Það er ekki að spyrja að því að þegar við Þingeyrarmenn komum í pontu skelfur jörð.
En ég hafði gaman af því að hlusta á ræðu hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar og hann er að tala um heimilin sérstaklega. Heimilin eru sirkabát 5% af orkunotkun landsins. Það eru svona hugmyndir um hvernig er hægt að verja og halda ákveðnu verði til heimilanna í landinu og jafnvel smærri fyrirtækja og þessi umræða er búin að eiga sér stað hérna í dag. Ég velti fyrir mér: Af hverju erum við að tala í þessa átt, af því við erum að tala um að það er raforkuskortur á Íslandi? Það sem íslenskan orkuiðnað vantar, bæði varðandi flutning og dreifikerfi orku og líka uppbyggingu á virkjunum, er að við þurfum að hafa fyrirsjáanleika. Fyrirsjáanleikinn á ekki að vera fimm, á ekki að vera tíu ár, fyrirsjáanleikinn þarf að vera 20–30 ár fyrir þá sem eru að byggja upp orkuinnviði, þau fyrirtæki sem eru í því, og það er kannski stóra málið, að við komum í veg fyrir að það sé skortur, af því að við höfum búið við lágt orkuverð og það hafa verið mikil lífsgæði fyrir okkur Íslendinga.
Varðandi vindorkuna er náttúrlega Búrfellslundur eða Vaðölduver að fara af stað, Blöndulundur vonandi líka. Síðan hefur Langanesbyggð kallað eftir því og verið jákvæð fyrir uppbyggingu vindorkuvera og síðan Fljótsdalshérað þannig að það eru ákveðin verkefni sem er mikil jákvæðni fyrir. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Sér hann þá fyrir sér að það verði sett einhver sérlög um raforkuverð, og þá flutninginn líka þar inni í, til heimilanna í landinu?