156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[17:04]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni, Þingeyrarmanni, fyrir hans andsvarið. Hann spyr hvort ég sjái fyrir mér sérlög um raforkuverð til heimila. Stórt er spurt. Ég held að það sé lausnin núna, a.m.k. að sinni, að það sé næg raforka þannig að verðið haldist lágt. Ég held að það sé eina lausnin sem menn horfa til. Auðvitað þarf að vera raunveruleg áætlun um það hvað tekur við, hvaða virkjun er næst og hversu mikla orku við erum að fara að nýta á næstu árum með tilliti til þeirrar þarfar sem er að skapast eða er fyrir hendi. Auðvitað þarf það að vera.

Einhvers staðar hefur einhver sofið á verðinum greinilega og það er ekkert nýtilkomið, það er ekkert núna, á þessu ári. Það er ekki kannski fyrir fimm árum, það er jafnvel lengra aftur í tímann sem á að leita orsaka þess að við höfum einhvers staðar sofið á verðinum, eða eins og ég held að hafi komið fram í umræðunni hér, að menn hafi ekki áttað sig á því hversu flókið regluverkið um aðdraganda og undirbúning að virkjunum myndi verða og hversu flækjustigið gat orðið mikið, miklu meira en menn gerðu ráð fyrir. Nú vil ég nefna kannski kæruleiðir og heimildir til að kæra og þann tíma sem það allt saman tekur, mat á alls konar áhrifum sem er tímafrekt, allt þetta, menn kannski sáu þetta ekki nægilega fyrir. En þrátt fyrir það verður að vera áætlun um framleiðslu á raforku.