156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[17:06]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, Þingeyramanni. Meðaltími við að byggja virkjun er um fimm ár og ég held við ættum að setja okkur það markmið að með leyfisferlinu og öllum undirbúningi taki þetta átta ár, frá því að við byrjum ferlið og þangað til virkjunin er komin af stað, í staðinn fyrir eins og núna með Hvammsvirkjun sem er búin að vera 25 ár í ferli.

Ræða hv. þingmanns var efnismikil og þess vegna langar mig kannski að grípa hér niður í annað mál sem hann impraði á og það er í rauninni báknið sem hefur orðið í kringum raforkukerfi á Íslandi og það hljóta að vakna upp spurningar: Getum við með einhverjum hætti einfaldað í rauninni umfang og þann mannafla og í rauninni stofnanir og annað sem eru í kringum raforkukerfið á Íslandi? Þá hlýtur kannski að blasa beinast við að við erum með tvö ríkisfyrirtæki sem sjá um að dreifa rafmagni. Annað er með svokallaðar dreifiveitur og hitt sér um svokallaða byggðalínu, stóru stofnlínuna, og síðan er það annað fyrirtæki. Þetta eru sem sagt Landsnet sem sér um byggðalínuna og síðan er það Rarik sem sér um dreifiveiturnar. Að sjálfsögðu erum við síðan með Norðurorku og veitur bæði á Akureyri og í Reykjavík og svona allt í kringum landið. Þá velti ég fyrir mér og langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann að það væri skynsamlegt, kannski mögulega til að minnka báknið, minnka flækjustigið og hver á jafnvel að gera hvað, af því að við vitum að þess dæmi eru að viðkomandi fyrirtæki hafi ekki getað komið sér saman um hvort ætti í rauninni að fara í ákveðnar framkvæmdir, og telur hann að það væri jafnvel ráðlagt að við myndum skoða það að sameina þessi tvö ríkisfyrirtæki sem sjá um að dreifa rafmagni, Rarik og Landsnet?