raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og ég held að hv. þingmaður hafi verið að ræða þetta út frá forsendum sem mjög margir ræða um. Mér fannst söguskýring hv. þingmanns vera prýðileg þó svo að ég verði að viðurkenna, þegar ég hlustaði á þetta, að auðvitað er það þannig að það var stóriðjan, þvert á það sem menn halda, sem fjármagnaði í raun bæði flutningskerfið og framleiðslukerfið hjá okkur að stærstum hluta þegar kemur að raforkunni. En við höfum svo sem fengið að njóta þess bæði með lægra orkuverði og svo miklum arðgreiðslum orkufyrirtækja, ekki bara Landsvirkjunar heldur sömuleiðis Orkuveitu Reykjavíkur til opinberra sjóða. Ég spyr þingmanninn hvort honum finnist við ekki hafa verið að fá til baka það sem foreldrar okkar og afar og ömmur okkar kannski settu í þetta, ef þannig má að orði komast.
Sömuleiðis spyr ég, af því að þetta frumvarp gengur út á það sem ég held að flestir séu sammála um, að það eigi að vera hátternisreglur og gagnsæi á þessum markaði, en mér fannst hv. þingmaður tala eins og hann hefði ekki áhuga á markaðnum: Hvaða fyrirkomulag myndi hann vilja sjá? Það er ekki sérevrópskt að vera með markaði, ég held að í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við séu menn með markaði. Það er allt í lagi að velta því fyrir sér hvort við vildum gera þetta með einhverjum öðrum hætti. Ég heyri að hv. þingmaður er búinn að gera það. En hvaða fyrirkomulag annað? Þetta eru mjög flókin viðskipti og þau verða bara flóknari. Venjulegt heimili er að fara að nota t.d. mun meira rafmagn en áður, m.a. út af orkuskiptunum, svo bara eitt dæmi sé tekið. En síðan nýtir auðvitað atvinnulífið sér raforku og heitt vatn, þó að það heyri nú ekki undir þetta, mun gera það í meira mæli heldur en nú og það að auka framleiðsluna er hægt að gera bæði með stórum og litlum aðferðum.