raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Kannski misskildi ég hv. þingmann ef hann er að tala um hvort það eigi að selja Landsvirkjun eða ekki. Mín skoðun er mjög skýr: Það er ekkert vit í fyrir okkur að selja Landsvirkjun og við eigum að láta það alveg eiga sig og ekkert vera að selja neina hluti í því fyrirtæki, það hefur algjöra sérstöðu. Kannski gleymum við því með auðveldustu virkjunarkostina eða hagkvæmustu, þeir eru annaðhvort búnir að virkja þá eða eru á leiðinni að virkja þá og hafa reyndar verið mjög varkárir í því að nýta þá kosti sem þeir eru nú þegar með í nýtingarflokki, kannski um of. Við þurfum auðvitað að huga að því ef þeir ætla ekki að nýta þá hvernig það getur nýst þjóðinni. Hv. þingmaður ræddi það, sem augljóst er, að við sofnuðum á verðinum. Þegar ég tók við þessu embætti, sem er ekki mjög langt síðan, sem hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson gegnir núna þá sögðu forystumenn Orkuveitu Reykjavíkur, forystumenn borgarstjórnar Reykjavíkur, að það væri ekki réttlætanlegt að virkja meira. Ég held að það segi allt sem segja þarf um hvar menn voru þá. Og þá var svo sannarlega ekki þessi stuðningur í þinginu eins og er núna. En látum það liggja á milli hluta. Aðalatriðið er þetta: Ég setti af stað, og ég vona að því verði ekki hætt, virkjunarátak með smávirkjanir, vatnsaflsvirkjanir. Hvað þýðir það? Það þýðir að bændur landsins geta búið sér til fjármuni með því að búa til raforku og einhverjir landeigendur og sömuleiðis geta allir sem vilja og geta selt inn á kerfið sett birtuorku á þökin sín og hvar sem þeir vilja. Ýmsir aðrir möguleikar eru til staðar sem við sjáum fyrir, aðrir sem við sjáum ekki fyrir. En þetta er hröð þróun og mjög mikilvægt að við séum með nægt framboð. Ef það er ekki nægt framboð þá mun það alltaf koma fram í verðinu með einhverjum hætti. Ég kannski misskildi hv. þingmann en við ákváðum árið 2003 að fara þessa markaðsleið. Þetta frumvarp gengur út á það að það séu eðlilegar reglur á markaði eins og við viljum sjá á mörkuðum.