raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir seinni athugasemdir hans. Já, við erum alveg á sama stað varðandi það að auðvitað er það bara gott fyrir kerfið og sérstaklega náttúrlega fyrir dreifikerfið ef landeigendur eru að virkja minni háttar læki eða ár til að selja inn á kerfið og styrkja þar með dreifikerfið um landið sem virkilega kemur að góðum notum á löngum leiðum og heldur uppi spennu þannig að það er bara hið besta mál og auðvitað fá þeir verð fyrir það. Ég tel nú að öðru leyti, ég hef hlustað á umræðurnar í dag, að við höfum átt bara ansi gagnlegar umræður, kannski ekki nákvæmlega oft á tíðum um efnisatriði þessa frumvarps þó að þetta sé auðvitað náskylt því að þetta er breyting á raforkulögum. Við höfum farið vítt um vegi raforkunnar og átt að mörgu leyti mjög gagnlegar umræður.
Ég held varðandi vindorkuna að þá þurfum við að stíga varlega til jarðar í því vegna þess að hún er í raun og veru á algjöru byrjunarstigi hér á landi og ég vil bara hvetja til þess að við látum ekki einhver stórslys gerast þar heldur reynum að horfa fram í tímann og setja eitthvert regluverk utan um hana þannig að það fari ekki úr böndunum.