156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[17:19]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með síðasta hv. þingmanni að hér hafa verið góðar umræður. Ég held að það sé allt í lagi að menn taki þetta í stærra samhengi. Málið tengist því að hér á að koma fram frumvarp sem hefur þann tilgang að mæla fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum og eftirlit til að stuðla að gagnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði. Viðskipti með raforku fara fram á samkeppnismarkaði eins og við þekkjum og það er stórmál, skiptir gríðarlega miklu máli og átti auðvitað fyrir löngu að vera komið. En ég held að þetta sé ein birtingarmynd þess að annars vegar gerðist mjög lítið í mjög langan tíma, við finnum fyrir því núna, en síðan hefur líka gerst mikið á undanförnum árum. Ég veit ekki hvort það sé einstakt en það er alla vega, frá því að maður fór að fylgjast með stjórnmálum, mjög langt síðan það hefur verið jafn mikill samhljómur á milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu þegar kemur í það minnsta að áherslunum í orkumálum. Það er gríðarlega mikilvægt. Ég held að það skipti mjög miklu máli, virðulegi forseti, að ræða þessi mál vegna þess að það er ótrúlegt þegar maður kemur að málaflokki sem þessum hvað það er mikið af ranghugmyndum og misskilning í gangi sem er náttúrlega fyrst og fremst vegna þess að það er ekki verið að ræða málin.

Ég geri ekki neinar athugasemdir við það hjá hv. þingmanni sem hér talaði áðan, Karli Gauta Hjaltasyni, 4. þm. Suðurk., þegar hann segir eins og margir segja að við þurfum að fara varlega í vindorkuna, ég held að það sé alveg rétt. En það er engin hætta á því og það eru engin teikn á lofti um að það sé mjög auðvelt að koma hér upp stórum vindorkugörðum eða á skömmum tíma. Auðvitað er það sá orkukostur sem tekur skemmstan tíma þannig að ef maður ætlaði að koma hratt með framboð á orku þá er það það eina sem er í augsýn. Það tekur aðeins lengri tíma að koma með vatnsaflið og enn þá lengri með jarðvarma. En núna erum við með fyrirkomulagið, við erum með rammann. Ég kom hér með frumvörp um flýtimeðferð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum til þess að við gætum komið með raforku inn á okkar markað, sem er mjög mikilvægt. Það náðist ekki og það verður áhugavert að sjá hvað hæstv. ríkisstjórn mun gera, hvaða útspil munu koma í því. Okkur vantar rafmagn hratt og það sem tekur skemmstan tíma er vindorka. Auðvitað er Landsvirkjun byrjuð að nota annan orkukostinn sinn eða nýtingarkostinn sinn til þess að setja af stað vindorkugarð en það væri mjög æskilegt ef hún myndi nýta þá báða.

Síðan eru aðrir möguleikar og þetta þarf ekki allt að vera stórt. Ég vona að ríkisstjórnin haldi áfram með það átak sem ég setti af stað með smávatnsaflsvirkjanir, það eru gríðarlega miklir möguleikar í því fyrir íslenska þjóð. Ég vek athygli á því að gamla Orkustofnun mat það og niðurstaðan var sú að það væru 2.500 kostir fyrir smávatnsaflsvirkjanir og uppsett afl þessara virkjana ef þær yrðu allar að veruleika væri, ef ég man rétt, 3.700 MW en uppsett afl hjá okkur núna er 3.000. Auðvitað er þetta ekki allt saman raunhæft, það segir sig sjálft, en þó að það væri bara einn fjórði af því þá myndi það muna miklu fyrir framboðshliðina. Það myndi líka muna vonandi miklu fyrir þá aðila sem myndu setja vatnsaflsvirkjanir af stað og bæði geta nýtt rafmagnið hjá sér og selt inn á kerfið. Það er mjög mikilvægt að við tökum alla hnökra af og það var stefna síðustu ríkisstjórnar eða í það minnsta síðasta ráðherra að koma í veg fyrir að það væru einhverjar hindranir fyrir því að fólk gæti selt rafmagn inn á kerfið. Það er bara spennandi kostur sem allir geta nýtt sér, bæði í þéttbýli og dreifbýli með mismunandi hætti og er gert annars staðar með góðum árangri. Við værum ekki fremstir þar eins og við höfum verið þegar kemur að jarðvarmanum og að sumu leyti vatnsaflinu hér áður fyrr, kannski ekki fremstir en við höfum verið í allra fremstu röð þegar kemur að vatnsaflinu og svo sannarlega fremstir þegar kemur að jarðvarmanum. Þetta er eitthvað sem skiptir máli. Lítið skiptir máli. Það eru margar ógnir sem að okkur steðja og svo sannarlega þegar kemur að orkumálum. En við skulum ekki gleyma því að það er mikið af tækifærum sem við eigum að nýta.