156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[17:33]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína samantekt og einmitt að koma inn á þá miklu samstöðu sem er um þetta mál og bara um að það sé tekið á öllum málum er kemur að orkubúskap okkar. Hæstv. ráðherra kom inn á að þetta mál hafi strandað í fyrri ríkisstjórn. Það er alveg rétt að það kom ekki hér til þingsins þó að þáverandi ráðherra og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hafi verið búinn að útbúa málið og koma því til ríkisstjórnarinnar. En það er líka rétt sem hæstv. ráðherra kom hér inn á að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, á meðan hann var umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og sú ríkisstjórn sem hann sat í komu fullt af málum af stað, mjög mörgum málum, mun fleiri málum heldur en þáverandi hæstv. ríkisstjórn sem var hér 2009–2013, leidd af flokki hæstv. ráðherra, sem var aðallega í því að setja sand í tannhjólin. Því spyr ég núna hæstv. ráðherra, í tilefni af orðum hans um þennan samhljóm hér og að hann lýsti góðu veðri hjá hæstv. ríkisstjórn núna, hvort hæstv. ráðherra muni ekki nýta sér það góða veður og þann samhljóm sem birtist hér í þinginu í dag við umræðu í þessu máli og þetta góða veður sem hann segir að sé núna í hæstv. ríkisstjórn og komi bara með enn fleiri mál til að bæta auðlindanýtingu og orkubúskap Íslendinga fyrir íslenska velsæld, hvort hann muni ekki nýta sér það og þennan vilja okkar til að styðja hann til góðra verka?